Sýslumenn: Fjölskyldumál
Hvernig get ég undirbúið mig fyrir sáttameðferðarviðtal?
Til umhugsunar fyrir foreldra sem eru að hefja sáttameðferð:
Hvernig eru samskipti okkar foreldranna? Hvað get ég gert til að bæta þau?
Hvað gengur vel? Hvað gæti gengið betur?
Hef ég heyrt viðhorf hins foreldrisins og tekið sanngjarna afstöðu til þess?
Hvað vill barnið? Hvernig líður því og hvað get ég gert til að því líði betur?
Hvernig stuðla ég að góðum tengslum barnsins við hitt foreldrið?
Hvernig tala ég um hitt foreldrið fyrir framan barnið?
Hvað vil ég að ávinnist í sáttameðferðinni?
Hef ég skýrar tillögur?
Hvað tel ég viðunandi niðurstöðu?
Hér má finna nánari upplýsingar um sáttameðferð í ágreiningsmálum vegna barna og hér má finna bækling um sáttameðferð á nokkrum tungumálum.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?