Sýslumenn: Fjölskyldumál
Breyting á meðlagsgreiðslum
Foreldrar geta gert samning um breytingu meðlags með því að gera nýjan samning. Breytingin getur til dæmis verið beiðni um aukið meðlag eða beiðni um lækkun eða niðurfellingu aukins meðlags.
Ef ekki næst samkomulag er hægt að:
fara fram á úrskurð sýslumanns um breytingu meðlags
að gera kröfu um að dómari dæmi meðlag ef forsjár- eða lögheimilismál er fyrir dómi
Hér má finna nánari upplýsingar um meðlag.
Hér má finna nánari upplýsingar um framfærslu.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?