Sýslumenn: Fjölskyldumál
Er hægt að fá lögskilnað strax?
Hjón geta óskað eftir lögskilnaði án þess að skilja fyrst að borði og sæng hjá sýslumanni ef:
þau eru sammála um að skilja lögskilnað,
annað hjóna hefur framið hjúskaparbrot,
annað hjóna hefur beitt maka eða barn sem býr hjá þeim ofbeldi og hefur gengist við brotinu eða hlotið dóm fyrir það,
hjón hafa ekki búið saman vegna ósættis í eitt ár,
annað hjóna var þegar gift þegar til hjúskapar var stofnað.
Hjónin þurfa að vera sammála um grundvöll skilnaðarins. Ef annað krefst lögskilnaðar á grundvelli hjúskaparbrots eða ofbeldis og hitt kannast ekki við háttsemina, eða vill ekki að lögskilnaður verði veittur á þeim grundvelli, þá fæst lögskilnaður ekki hjá sýslumanni. Hægt er að leita til dómstóla með kröfuna, eða skoða hvort grundvöllur sé fyrir samkomulagi um að fá skilnað á öðrum grundvelli.
Útgáfa leyfis til lögskilnaðar kostar 6.500 krónur.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?