Fara beint í efnið

Skráningareglur ökutækja

Þjónustuaðili:

Síðast uppfært:

1. janúar 2025 -

Gildir frá: 01.06.2024. Skráningareglur ökutækja eru fyrir fagaðila sem sinna skráningum í umboði Samgöngustofu eða tilkynna breytingar í ökutækjaskrá samkvæmt lögum.

    Notkunarflokkaskráningar

    Eftirtaldir aðilar geta gert samning um að vinna í umboði Samgöngustofu hvað varðar skráningu ökutækja í notkunarflokk í tengslum við opinberar skoðanir þeirra eða nýskráningar (kallaðir þjónustuaðilar):

    • Faggiltar skoðunarstofur ökutækja

    • Umboð (ökutækja) með fulltrúa B

    Efni kaflans

    Skilgreining notkunarflokkanna

    Um eftirfarandi notkunarflokka í ökutækjaskrá er að ræða sem urðu til 1. janúar 2025.

    Þeir auðkenna tiltekna farm- og farþegaflutninga í atvinnuskyni undir rekstrarleyfi, þ.e. flutning fólks gegn endurgjaldi þar sem farþeginn er ekki tengdur rekstri fyrirtækisins sem sér um flutninginn og flutning á hvers kyns farmi gegn endurgjaldi þegar flutningsþjónusta er seld sérstaklega og flytjandi starfar við flutningsþjónustu, eftirfarandi bifreiða:

    • bifreið (8 farþegar eða færri - hét ferðaþjónustuleyfi til 31.12.2024)

    • bifreið sem er sérútbúin (8 farþegar eða færri - hét rekstrarleyfi sérútbúinna bifreiða til 31.12.2024)

    • bifreið til að flytja skólabörn (8 farþegar eða færri - hét skólabifreið til 31.12.2024)

    • hópbifreið (9 farþegar eða fleiri - hét rekstrarleyfi hópbifreiða til 31.12.2024)

    • sendi- og vörubifreið (farmflutningar - hét rekstrarleyfi farmflutninga til 31.12.2024)

    Notkunarflokkur "Atvinnurekstur (RL)"

    Hér undir falla allar bifreiðir sem notaðir eru undir rekstrarleyfi sem annars væru í notkunarflokknum "Almenn notkun".

    • Tilvist: Notkunarflokkurinn er til vegna þess að hann er skilgreindur í reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi og heitir þar "Ökutæki til farþegaflutninga eða farmflutninga í atvinnuskyni".

    • Skráningarheimild/skylda: Það er skylt að skrá ökutæki í þennan notkunarflokk sé það notað undir rekstrarleyfi (og óheimilt annars).

    • Fyrir ökutækisflokka: Bifreiðir.

    • Skoðunarregla: Skoðunartíðni verður 1-1-1-1-1...

    Bifreiðir í öðrum notkunarflokkum, sem kunna að verða notaðir í atvinnurekstri undir rekstrarleyfi, halda þeim notkunarflokkum að viðbættu "(RL)" í nafni flokkanna til aðgreiningar. Þeir eru:

    • Flutn. hreyfih. (RL)

    • ADR (RL)

    • Sérstök not (RL)

    • Sérstök not / ADR (RL)

    • Undanþ. / Sérst. not (RL)

    • Undanþáguakstur (RL)

    • VSK (RL)

    • VSK / ADR (RL)

    • VSK / Ökut.leiga (RL)

    • Ökukennsla (RL)

    • Ökukennsla / ADR (RL)

    • Ökuken. / Ökut.leiga (RL)

    • Ökutækjaleiga (RL)

    Rekstrarleyfishafi ber ábyrgð á að tilkynna til Samgöngustofu að skrá eigi bifreið í notkunarflokkinn og úr honum. Þetta getur hann gert í tengslum við umsókn um rekstrarleyfi, við öflun og sölu bifreiða sem notuð eru undir rekstrarleyfinu og þegar hann nýtir bifreið í eigu annars aðila undir rekstrarleyfið sitt.

    Ekki er gerð krafa um breytingaskoðun eða sérstaka leyfislímmiða í tengslum við skráningu í eða úr notkunarflokkunum, en þegar breytingin hefur áhrif á skoðunarreglu (í/úr árlegri skoðun) þarf rekstrarleyfishafi að frá réttan miða hjá Samgöngustofu eða skoðunarstofu ökutækja.

    Gjald Samgöngustofu fyrir skráningu bifreiðar í/úr notkunarflokki frá 1. febrúar 2025 er 577 krónur.

    Kröfur til ökutækjanna

    Um bifreið sem notuð er undir rekstrarleyfi, hverju tagi sem það nefnist, gildir að

    • bifreiðin skal vera merkt rekstraraðila og skal merking vera sýnileg og auðlesanleg.

    • bifreiðin fæst ekki skráð sem fornökutæki.

    Um bifreið sem notuð er undir almennu rekstrarleyfi í tengslum við ferðaþjónustu (hvort sem hún er á íslenskri eða erlendri skráningu innan EES) gildir:

    • Bifreiðin rúmi ekki fleiri en 8 farþega.

    • Bifreiðin skal búin þriggja punkta öryggisbeltum, slökkvitæki og sjúkrakassa (skoðað í reglubundinni skoðun).

    Um sérútbúna bifreið sem notuð er undir almennu rekstrarleyfi til farþegaflutninga gildir:

    • Bifreiðin rúmi ekki fleiri en 8 farþega (ekki skráð fyrir fleiri farþega).

    • Bifreiðin falli undir skilgreiningu á torfærubifreið í reglugerð um gerð og búnað ökutækja (merkt í ökutækjaskrá "Torfærubifreið" í gerðarlýsingu) eða er gerðarviðurkennd sem torfærubifreið (ökutækisflokkur M1G, N1G, N2G, N3G).

    • Hjólbarðastærð (þvermál) bifreiðarinnar skal vera að lágmarki 780 mm. Nái skráð hjólbarðastærð ekki þessari stærð verður að færa ökutæki til breytingaskoðunar þar sem raunverulegt þvermál er skráð sem athugasemd í ökutækjaskrá.

    • Bifreiðin skal uppfylla kröfur sem gerðar eru til breyttra, sérútbúinna bifreiða í skoðunarhandbók ökutækja, s.s. um slökkvitæki og sjúkrakassa (skoðað í reglubundinni skoðun).

    Um bifreið sem notuð er undir almennu rekstrarleyfi til að flytja skólabörn gildir:

    • Bifreiðin rúmi ekki fleiri en 8 farþega (ekki skráð fyrir fleiri farþega).

    • Bifreiðin skal búin merkjum fyrir skólabifreið, sbr. lýsingu í reglugerð um merki á skólabifreiðir.

    • Í bifreiðinni skulu vera bílbelti fyrir alla farþega og með slökkvitæki og sjúkrakassa (skoðað í reglubundinni skoðun).

    • Sæti bifreiðarinnar skulu búnir upphækkunum fyrir yngstu farþegana þegar við á.

    Áhrif á skráningarmerki

    Skráningin hefur engin áhrif á skráningarmerkið.

    Lög og reglur

    Frekari upplýsingar er að finna í eftirfarandi lögum, reglugerðum og/eða reglum (með viðbótum eftir því sem við á):

    • Umferðarlög nr. 77/2019.

    • Lög um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017.

    • Reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004.

    • Reglugerð um skráningu ökutækja nr. 751/2003.

    • Reglugerð um merki á skólabifreiðum nr. 279/1989.

    • Reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 474/2017.