Fara beint í efnið

Skráningareglur ökutækja

Þjónustuaðili:

Síðast uppfært:

1. janúar 2025 -

Gildir frá: 01.06.2024. Skráningareglur ökutækja eru fyrir fagaðila sem sinna skráningum í umboði Samgöngustofu eða tilkynna breytingar í ökutækjaskrá samkvæmt lögum.

    Notkunarflokkaskráningar

    Eftirtaldir aðilar geta gert samning um að vinna í umboði Samgöngustofu hvað varðar skráningu ökutækja í notkunarflokk í tengslum við opinberar skoðanir þeirra eða nýskráningar (kallaðir þjónustuaðilar):

    • Faggiltar skoðunarstofur ökutækja

    • Umboð (ökutækja) með fulltrúa B

    Efni kaflans

    Skilgreining notkunarflokkanna

    Um eftirfarandi notkunarflokka í ökutækjaskrá er að ræða.

    Notkunarflokkur "Leigubifreið"

    Leigubifreið er fólksbifreið til að flytja 8 farþega eða færri og fellur undir leigubílaleyfi.

    • Tilvist: Notkunarflokkurinn er til vegna þess að hann er skilgreindur í reglugerð um gerð og búnað ökutækja og reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.

    • Skráningarheimild/skylda: Það er skylt að skrá ökutæki í þennan notkunarflokk sé það skráð undir leyfið (og óheimilt annars).

    • Fyrir ökutækisflokka: Fólksbifreið (8 farþega eða færri).

    • Skoðunarregla: Skoðunartíðni verður 1-1-1-1-1...

    Skoðunarstofa sér um að tilkynna ökutæki í notkunarflokkinn á US.111 samhliða breytingaskoðun. Bifreið sem skráð í þennan notkunarflokk má breyta til baka í almenna notkun standist hún breytingaskoðun þar að lútandi.

    Kröfur til ökutækjanna

    Kröfur til leigubifreiða (8 farþega eða færri)

    Hver sá einstaklingur sem stundar leigubifreiðaakstur skal hafa til þess leyfi og nota til þess samþykkta leigubifreið. Leyfisveitingadeild Samgöngustofu afgreiðir umsóknir um leyfi. Fólksbifreið (8 farþega eða færri) sem skráð er sem leigubifreið skal uppfylla neðangreindar tæknilegar kröfur og kröfur um eignarhald m.t.t. rekstrarleyfis.

    Skírteini eða heimild til skráningar í notkunarflokkinn skal vera fyrirliggjandi í breytingaskoðun við breytingu í notkunarflokkinn (ekki athugað í öðrum skoðunum) og borið saman við skráningu eignarhalds í ökutækjaskrá:

    • Rekstrarleyfishafi (á leyfisskírteini) skal annað hvort vera eini eigandi bifreiðarinnar eða skráður umráðandi hennar númer eitt (t.d. samkvæmt samningi við löggilt kaupleigu- eða rekstrarleigufyrirtæki).

    • Leyfisskírteini skal leigubifreiðastjóri við leiguakstur ávallt hafa meðferðis og sýnilegt. Skírteinið er útgefið af leyfisveitingadeild Samgöngustofu til sönnunar á því að hann hafi leyfi til akstursins. Skírteinið er annað hvort bleikt (nýja útlitið, merkt "Leyfisskírteini rekstrarleyfishafi" í haus) eða dökkblátt (eldra útlitið, merkt "Atvinnuskírteini" í haus).

    • Ef viðkomandi er í umsóknarferli fyrir rekstrarleyfi leigubílstjóra (ekki kominn með skírteini) þá þarf hann að framvísa bréfi frá leyfisveitingadeild Samgöngustofu sem staðfestir að fullnægjandi umsóknargögnum hafi verið skilað inn og að lokaskrefið sé að breyta notkunarflokki bifreiðar í leigubifreið í breytingaskoðun á skoðunarstöð.

    Leigubifreið er hægt að aka með gjaldmæli eða án (er þá ekið samkvæmt fyrirframumsömdu áætluðu eða endanlegu heildargjaldi). Um gjaldmæla og auðkenni gildir:

    • Löggiltir gjaldmælar skulu vera í öllum leigubifreiðum sem seldar eru á leigu fyrir gjald sem tekur mið af ekinni vegalengd eða þeim tíma sem ferðin tekur. Um löggildingu gjaldmæla og eftirlit með þeim fer eftir lögum um mælingar, mæligrunna og vigtarmenn og reglugerðum sem settar eru á grundvelli þeirra, og er ekki athugað við skoðun.

    • Bifreið sem er án gjaldmælis skal auðkennd með leyfismiða útgefnum af Samgöngustofu í framrúðu, "Rekstrarleyfi leigubifreið". Bifreið sem er með gjaldmæli má auðkenna með leyfismiðanum að beiðni rekstrarleyfishafa. Miðinn er settur í af skoðunarstofu við breytingu í notkunarflokkinn.

    • Bifreið sem er með gjaldmæli skal auðkennd með gulu þakljósi (taxaljósi), sjá nánar í skoðunarhandbók ökutækja. Óheimilt er að hafa og nota taxaljós annars.

    Leigubifreið er hægt að gera út frá leigubifreiðabílastöð eða ekki (er þá með "eigin stöð" og bara einn bíl) og kemur það fram á leyfisskírteininu (nafn stöðvarinnar er fyrir neðan kennitölu leyfishafa).

    • Leigubifreið, sem ekur frá leigubifreiðastöð, skal vera auðkennd með merki stöðvarinnar neðarlega fyrir miðju í framrúðu og stöðvarnúmeri á áberandi hátt ofarlega vinstra megin í afturrúðu bifreiðar. Þetta er athugað í öllum skoðunum.

    Kröfur um gerð og búnað:

    Bifreiðin skal standast eftirfarandi skoðanir:

    • Skoðun við skráningu í flokkinn: Breytingaskoðun (B).

    • Regluleg skoðun: Bifreiðin skal standast Aðalskoðun (A) árlega (skoðunartíðni ökutækis breytist við skráningu í flokkinn).

    Tilkynna þarf Samgöngustofu um bíla sem leyfishafi hyggst nýta til reksturs. Þetta á við þegar verið að bæta við eða breyta um bíl sem leyfishafi notar. Hafi bifreið verið samþykkt í notkunarflokkinn er rekstrarleyfishafa bent á að sinna þessari tilkynningaskyldu.

    Áhrif á skráningarmerki

    Skráningin hefur ekki áhrif á skráningarmerkið.

    Lög og reglur

    Frekari upplýsingar er að finna í eftirfarandi lögum, reglugerðum og/eða reglum (með viðbótum eftir því sem við á):

    • Umferðarlög nr. 77/2019.

    • Lög um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017.

    • Lög um leigubifreiðar nr. 134/2001.

    • Reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004.

    • Reglugerð um leigubifreiðar nr. 397/2003.

    • Reglugerð um skráningu ökutækja nr. 751/2003.

    • Reglugerð um merki á skólabifreiðum nr. 279/1989.

    • Reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 474/2017.