Tryggingastofnun: Breytingar á örorku- og endurhæfingargreiðslum
Hvers vegna lækka greiðslur mínar við yfirfærslu í nýtt örorkulífeyriskerfi?
Vegna þess að ef þú ert með greiðslur úr lífeyrissjóðum umfram frítekjumörk hafa þær áhrif á útreikning örorkulífeyris í nýju kerfi til lækkunar. Það getur leitt til þess að greiðslur lækki miðað við núverandi greiðslur eða falla niður. Þetta á nær eingöngu við um einstaklinga sem eru með tiltölulega háar greiðslur úr lífeyrissjóði.
Viðbótarlífeyrissparnaður hefur þó ekki áhrif á upphæðir örorkulífeyris.