Fara beint í efnið

Tryggingastofnun: Breytingar á örorku- og endurhæfingargreiðslum

Hvernig verður aldursviðbót í nýju kerfi?

Aldursviðbót greiðist þeim sem fá greiddan örorkulífeyri eða hlutaörorkulífeyri.

Full aldursviðbót er 30.000 krónur á mánuði eða 360.000 krónur á ári.

Full fjárhæð greiðist þeim sem voru 18–24 ára þegar annaðhvort

a) skilyrði fyrir sjúkra- og endurhæfingargreiðslum voru fyrst uppfyllt

eða

b) þegar niðurstaða samþætts sérfræðimats lá fyrst fyrir um að geta umsækjanda til virkni á vinnumarkaði væri metin 50% eða minni.

Fjárhæð aldursviðbótar lækkar um 5% fyrir hvert ár eftir 24 ára aldur og greiðist aldursviðbót ekki hafi umsækjandi fyrst uppfyllt skilyrðin við 44 ára aldur eða síðar.

Dæmi: Einstaklingur fær samþætt sérfræðimat um 26-50% getu til virkni á vinnumarkaði við 25 ára aldur. Aldursviðbót verður 95% af fullri fjárhæð og heldur hann þeirri upphæð til 67 ára aldurs.

Aldursviðbót er tekjutengd og lækkar samanlögð fjárhæð lífeyris, heimilisuppbótar og aldursviðbótar ef við á um 45% af tekjum lífeyrisþega umfram frítekjumörk, uns hún fellur niður.