Fara beint í efnið

Skoðunarhandbók ökutækja

Þjónustuaðili:

Síðast uppfært:

1. janúar 2025 -

Gildir frá: 01.03.2023. Í skoðunarhandbók ökutækja eru verklagsreglur fyrir skoðunarstofur og endurskoðunarverkstæði um hvernig haga skuli skoðun og dæmingum einstakra skoðunaratriða.

    Samantektir og tilkynningar

    Sérstakar tímabundnar tilkynningar, svokallaðar öryggistilkynningar, ætluðum skoðunarstofum um tímabundin öryggisvandamál í einstökum ökutækjum eða búnaði þeirra.

    Reglur um skráningu og breytingu ökutækisflokka, notkunarflokka og veigamikilla breytinga á ökutækjum má sjá í skráningareglum ökutækja.

    Tilvísanir til þeirra laga, reglugerða og reglna sem gilda um gerð og búnað ökutækja, skoðun, skráningu og annað er viðkemur skoðunarstarfsemi.

    Leiðbeiningaskjöl og ítarefni fyrir reglubundnar skoðanir er að finna undir þeirri verklagbók.

    Efni kaflans

    Raflestur um OBD tengi bifreiðar

    Með raflestri er átt við rafrænan aflestur upplýsinga úr ökutæki í gegnum OBD tengi þess (e. On-Board Diagnostics). Núgildandi tengi er af gerðinni OBD-II (eða OBD2).

    Raflestur gagna er varða bilanakóða og raungögn um losun og orkunotkun skal fara fram með því að nota búnað sem unnt er að tengja við OBD tengi bifreiðarinnar. Búnaðurinn, sem notaður er, skal hafa getu til að lesa gögnin eins og þau eru skráð í innbyggðan vöktunarbúnað bifreiðarinnar ásamt því að geta lesið varanlega bilanakóða.

    Tengið er yfirleitt mjög aðgengilegt. Oftast þarf bara að opna lok sem er yfir tenginu eða smella loki eða hlíf af. OBD tengið er yfirleitt að finna á eftirfarandi stöðum:

    • Oftast er tengið undir mælaborðinu, frekar vinstra megin.

    • Tengið getur einnig verið að finna við eða innan í miðjustokki, eða innan í hanskahólfi.

    Gæta verður þess að ganga frá aðgangi að OBD tenginu eins og komið var að því í lok skoðunar (setja lok á og hlífar fyrir).

    Raflestur bilanakóða og skoðunaratriði

    Raflestur bilanakóða á við eftirfarandi hóp bifreiða:

    • Bifreiðir skráðar eftir 29.11.2018 (sem er innleiðingardagur tilskipunar (ESB) 2014/45 um skoðun ökutækja í íslenskt regluverk).

    Skilgreindir bilanakóðar skipta þúsundum. Þeir samanstanda af einum bókstaf og fjórum stafatáknum:

    • Dæmi um kóða er "P0552" fyrir "Power Steering Pressure Sensor Circuit Low Input" og tengist EPS kerfinu (Electronic Power Steering).

    Fyrsta stafatáknið er bókstafur sem tiltekur kóðahópinn:

    • P : Búnaður í hreyfli og drifrás (e. Engine, Transmission)

    • B : Búnaður innan í bílnum (e. Switches, Controls, A/C, Airbag)

    • C : Hemla- og hjólabúnaður o.fl. að utan (e. Chassis, ABS, EBS, )

    • U : Fjarskipti og samtengirásir (e. Network and Wiring Bus)

    Fyrir kóðahóp P er annað stafatáknið tölustafur sem tiltekur uppruna kóðans:

    • 0 : Staðlaður OBD bilanakóði (e. Generic OBD Code)

    • 1 : Framleiðandakóði (e. Manufacturer Special OBD Code)

    Fyrir kóðahóp P er þriðja stafatáknið tölustafur eða bókstafur sem tiltekur kerfishluta og síðustu tvö stafatáknin mynda þá tveggja stafa tölu sem táknar bilunina nákvæmlega. Kerfishlutar eru:

    • 0, 1, 2 : Eldsneytisblanda (e. Air/Fuel mixture)

    • 3 : Kveikjukerfi (e. Ignition System or Misfire)

    • 4 : Mengunarvarnarbúnaður (e. Auxiliary Emission Controls)

    • 5 : Ökuhraði og snúningshraði (e. Vehicle Speed Control and Engine Idling)

    • 6 : Vélatölva (e. Onboard Computer Output)

    • 7, 8, 9 : Gír og drif (e. Transmission, Gearbox)

    • A, B, C : Tvinnkerfi (e. Hybrid Propulsion)

    Fyrir aðra kóðahópa (B, C, U) er afgangur stafatáknanna fjögurra stafa tala (númer kóðans).

    Með sérhverjum bilanakóða sem raflesinn er fylgir texti sem útskýrir ástæðu bilunarinnar. Einnig má fletta kóðanum upp á vefsíðum til að fá nánari skýringar á ýmsum tungumálum. Gefi bilanakóðar til kynna bilun eða bilanir sem fella má undir eitt eða fleiri af skoðunaratriðum handbókarinnar um raflestur eru kóðarnir teknir niður og sendir til Samgöngustofu að lokinni skoðun (með skoðunarfærslunni). Að auki gildir:

    • Frá 1. mars til 31. desember 2025 eru ekki er gerðar athugasemdir á skoðunarvottorð (þrátt fyrir að bilanakóðar finnist).

    • Frá 1. janúar 2026 eru gerðar viðeigandi athugasemdir á skoðunarvottorð, líka um óvirkt OBD tengi (að raflestur takist ekki).

    Samantekt skoðunaratriða um raflestur er að finna í töflunni. Upplýsingar um bilanakóða sem safnað verður til loka árs 2025 verða nýttar til að endurbæta þessa töflu.

    Atriði - dæming

    Bilanakóði gefur til kynna...

    Kóðahópur

    1.6.f - 2

    Hemlalæsivörn (ABS) - ...bilun

    Cxxxx

    1.7.c - 2

    Rafrænt hemlakerfi (EBS) - ...bilun

    P05xx, Cxxxx

    2.6.d - 2

    Rafknúinn aflstýrisbúnaður (EPS) - ...bilun

    P05xx, Cxxxx

    4.1.2.b - 2

    Stilling aðalljósa - ...bilun

    Uxxx

    4.1.3.c - 2

    Tenging aðalljósa - ...bilun

    Uxxx

    4.1.5.c - 2

    Hallastillingarbúnaður fyrir aðalljós - ...bilun

    Uxxx

    4.3.2.c - 2

    Tenging hemlaljóskera - ...bilun

    Uxxx

    6.1.9.a - 2

    Stjórntölva hreyfils - ...bilun/óleyfisbreyting

    P06xx

    7.1.3.b - 3

    Öryggisbeltaslakarar - ...bilun

    Bxxx

    7.1.4.b - 3

    Öryggisbeltastrekkjarar - ...bilun

    Bxxx

    7.1.5.b - 3

    Öryggispúðar - ...bilun

    Bxxx

    7.1.6.b - 3

    Öryggispúðakerfi (SRS) - ...bilun

    Bxxx

    7.12.f - 2

    Rafræn skrikvörn (ESC) - ...bilun

    Cxxx

    7.13.2.h - 1

    Ástand eCall - ...bilun

    Uxxx

    8.2.1.2.d - 2

    Mengunarvarnarbúnaður hreyfils með rafkveikju - ...bilun

    P04xx

    Raflestur og skil raungagna um losun og orkunotkun (RWD)

    Raungögn um losun og orkunotkun (e. Real World Data on CO2 emissions and fuel or energy consumption, eða RWD) eru raflesin úr bifreiðum í gegnum OBD tengið.

    Raflestur á rangögnum um losun og orkunotkun á við eftirfarandi hóp bifreiða:

    • Bifreiðir í ökutækisflokknum M1 (fólksbifreiðir) annars vegar, og hins vegar bifreiðir í ökutækisflokknum N1 (sendibifreiðir) sem eru undir 2.510 kg að eiginþyngd.

    • Sem knúnar eru brunahreyfli eingöngu (meðtaldar þær sem hafa rafmótor sem ekki er hægt að hlaða með raftengli) og þær sem knúnar eru bæði brunahreyfli og rafmótor með hlaðanlegri rafhlöðu (tengiltvinn með rafmótor).

    • Sem hafa fyrstu skráningu eftir 1. janúar 2021 (fyrsti skráningardagur) og eru ekki eldri en 15 ára frá fyrstu skráningu.

    • Undanskildar eru bifreiðir til sérstakra nota (og skráðar þannig í ökutækjaskrá).

    Raflestur á raungögnum um losun og orkunotkun skal gerður á viðeigandi bifreiðum í eftirfarandi skoðunum frá 1. mars 2025:

    • Í skráningarskoðun.

    • Í öllum aðalskoðunum.

    Þegar raflesa skal raungögn um losun og orkunotkun úr bifreið, skulu eftirfarandi upplýsingar raflesnar í öllum tilvikum:

    • Verksmiðjunúmer
      (e. Vehicle identification number).

    • Heildar eldsneytisnotkun (ltr)
      (e. Total fuel consumed (lifetime))

    • Heildar ekin vegalengd (km)
      (e. Total distance travelled (lifetime))

    Fyrir hlaðanlegar raf/bruna tvíorkubifreiðir (knúnar eru bæði brunahreyfli og rafmótor með rafhlöðu sem hægt er að hlaða sérstaklega) skal raflesa eftirfarandi upplýsingar að auki:

    • Heildar eldsneytiseyðsla á hreyfli og rafmótor (ltr)
      (e. Total fuel consumed (lifetime) in charge depleting operation)

    • Heildar eldsneytiseyðsla á hreyfli í hleðsluham (ltr)
      (e. Total fuel consumed (lifetime) in driver-selectable charge increasing operation)

    • Heildar ekin vegalengd á rafmótor án hreyfils (km)
      (e. Total distance travelled (lifetime) in charge depleting operation with engine off)

    • Heildar ekin vegalengd á hreyfli og rafmótor (km)
      (e. Total distance travelled (lifetime) in charge depleting operation with engine running)

    • Heildar ekin vegalengd á hreyfli í hleðsluham (km)
      (e. Total distance travelled (lifetime) in driver-selectable charge increasing operation)

    • Heildar orkuhleðsla úr tengli (kWh)
      (e. Total grid energy (lifetime) into the battery)

    Upplýsingunum skal skilað í sérstakri skrá (vefþjónusta) strax að lokinni skoðun (eða um að neitað hafi verið um söfnun). Hafi áskilin raungögn ekki verið lesin skal ástæðu þess skilað inn í staðinn:

    • R1: Tæknileg hindrun fyrir aflestri gagna

    • R2: Eigandi neitar að gera raungögn aðgengileg

    • R3: Önnur ástæða

    Heimild til raflesturs og söfnunar gagna

    Samkvæmt reglugerð um skoðun ökutækja skulu skoðunarstofur senda upplýsingar um gögn sem fást í raunverulegum akstri um eldsneytis- og/eða orkunotkun, eftir atvikum, til Samgöngustofu.

    Um er að ræða gögn sem fengin eru óbeint frá eiganda (umráðanda) ökutækis og tryggir Samgöngustofa að upplýsingarskylda gagnvart eigendum (umráðendum) ökutækja, eins og hún er sett fram í 14. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679 (um persónuvernd), sé uppfyllt. Gögnum sem fást í raunverulegum akstri skal safnað ásamt verksmiðjunúmerum ökutækja við reglubundna skoðun, nema eigandi (umráðandi) ökutækisins neiti alfarið að gera þau gögn aðgengileg.

    Skoðunarstofur, sem bera ábyrgð á söfnun þessara gagna skulu, með tilliti til söfnunar og vinnslu verksmiðjunúmeranna, teljast vera ábyrgðaraðilar viðeigandi gagna í skilningi 7. mgr. 4. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679.

    Ekki er heimilt að nota þessi gögn, sem safnað er hjá skoðunarstofum, í neinum öðrum tilgangi en þeim sem tilgreindur er í 12. gr. reglugerðar (ESB) 2019/631 (um sett viðmið varðandi CO2 losun nýrra fólks- og sendibifreiða).

    Skoðunarstofum er einungis heimilt að geyma verksmiðjunúmer ökutækja ásamt gögnum sem fást í raunverulegum akstri, sem safnað hefur verið í þessum tilgangi, þar til gögnin hafa verið send til Samgöngustofu, en þá skal þeim eytt.

    Lög og reglur

    Frekari upplýsingar er að finna í eftirfarandi lögum, reglugerðum og/eða reglum (með viðbótum eftir því sem við á):

    • Umferðarlög nr. 77/2019.

    • Reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004.

    • Reglugerð um skráningu ökutækja nr. 751/2003.

    • Reglugerð um skoðun ökutækja nr. 414/2021.

    • Reglugerð (ESB) 2017/1151 um m.a. aðgang að gögnum úr fólks- og sendibifreiðum (úr OBD).

    • Reglugerð (ESB) 2019/631 um sett viðmið varðandi CO2 losun nýrra fólks- og sendibifreiða.

    • Reglugerð (ESB) 2021/392 um aðferðir við eftirlit og skil gagna er varðar CO2 losun frá fólks- og sendibifreiðum, samanber reglugerð EU 2019/631.

    • Reglugerð (ESB) 2016/679 um persónuvernd (GDPR).

    • UNECE regla 83 um samræmdar aðferðir við viðurkenningu ökutækja með tilliti til losunar mengandi efna eftir eldsneytisgerð (og OBD).