Um Tryggingastofnun
Tryggingastofnun (TR) heyrir undir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og er ein stærsta þjónustustofnun landsins. Stofnunin setur ekki lög eða reglugerðir og ákvarðar ekki fjárhæðir bóta.
TR starfar samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 og lögum um félagslega aðstoð nr. 99/2007.
Landsbyggðin
Á landsbyggðinni eru umboðsskrifstofur TR staðsettar hjá sýslumanni.
Sjá staðsetningar sýslumanna á landsbyggðinni.
Hlutverk
Hlutverk TR er að framfylgja lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð og lögum um málefni langveikra barna auk þess að sinna öðrum verkefnum sem stofnuninni eru falin hverju sinni.
Stjórnsýsla
Alþingi setur lög sem TR starfar samkvæmt:
Lög um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna nr. 22/2006
Lög um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar nr. 40/2009
TR starfar einnig eftir reglugerðum frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.