TR vinnur með persónuupplýsingar einstaklinga sem fást frá myndavélum, hljóðritun, upplýsingum frá umsækjendum sjálfum og við öflun upplýsinga frá öðrum aðilum, sem heimild er fyrir í lögum.
Tryggingastofnun viðhefur rafræna vöktun á grundvelli lögmætra hagsmuna stofnunarinnar og til að tryggja öryggi starfsfólks og viðskiptavina.
Vöktun með öryggismyndavélum er viðhöfð allan sólarhringinn. Símtöl eru hljóðrituð. Tryggingastofnun er ábyrgðaraðili vöktunarinnar og tryggir öryggi persónuupplýsinga þeirra sem vöktun sæta. TR er umhugað að allir sem sæti vöktun séu þess varir og því gerir TR grein fyrir vöktun með skýrum hætti.
Vöktunin fer einungis fram í skýrum, málefnalegum og lögmætum tilgangi. Við vöktun gætir TR þess sérstaklega að gæta meðalhófs og ganga ekki lengra en þörf krefur til þess að virða einkalífsrétt þeirra er vöktun beinist að.
Ákveðnir verkferlar eru um hlustun á hljóðritun og skoðun myndefnis úr öryggismyndavélum. Slíkt er einungis skoðað af þeim sem hafa skýra heimild til þess, sé tilefni til.
TR birtir aldrei né miðlar efni opinberlega.
Sá sem sætt hefur rafrænni vöktun á rétt á að skoða hljóð- eða myndbandsupptökur sem til verða um hann við vöktunina. Skal heimila skoðun jafn fljótt og auðið er og eigi síðar en innan eins mánaðar frá móttöku slíkrar beiðni.
Þetta á þó ekki við ef réttur þess sem sætt hefur vöktuninni til að fá að skoða gögnin þykir eiga að víkja að nokkru eða öllu fyrir hagsmunum annarra en hans eigin.
Ef óljóst er hvort verða á við beiðni um skoðun eða hlustun er efni sent til lögreglu eða Persónuverndar til skoðunar.
TR miðlar ekki persónupplýsingum sem verða til við rafræna vöktun nema með skýru samþykki viðkomandi eða ef mælt er fyrir um miðlun upplýsinganna í lögum.
TR er skylt að afhenda lögreglu efni sem verður til við rafræna vöktun ef upplýsingar varða slys eða meintan refsiverðan verknað.
TR kann að miðla upplýsingum ef þær eru nauðsynlegar einum eða fleiri hinna skráðu til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja, t.d. þegar tryggingafélag tekur afstöðu til bótaskyldu.
TR kann einnig að miðla upplýsingum ef ákvörðun Persónuverndar um miðlun upplýsinganna liggur fyrir.
Upplýsingar sem verða til við rafræna vöktun hvort sem er mynd eða hljóð verða varðveittar í 30 daga skv. 11. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.
Tryggingastofnun eyðir upptökum að þeim tíma liðnum. Þetta á ekki við um upptökur sem hafa verið sendar lögreglu vegna slysa eða refsiverðra mála, upptökur vegna sönnunar krafna í dómsmálum eða annarra slíkra laganauðsynja eða að Persónuvernd heimili sérstaklega eða mæli fyrir um lengri varðveislutíma.
Hægt er að hafa samband við persónuverndarfulltrúa Tryggingastofnunar varðandi rafræna vöktun TR á personuvernd@tr.is.