Sjúkratryggingar: Heilbrigðisstarfsfólk
Hvernig skrái ég starfsmenn sem starfa fyrir mig eða starfsstöð mína?
Ábyrgðarmaður rekstrar samkvæmt rekstrarleyfisskráningu hjá landlækni skráir sig inn á Gagnagátt á eigin kennitölu. Þar skráir hann sig sjálfan og þá heilbrigðisstarfsmenn sem eru launþegar. Ekki þarf að sækja um fyrir starfsmenn sem ekki eru heilbrigðisstarfsmenn. Hægt er að sjá hver er ábyrgðarmaður reksturs á rekstraraðilaskrá Landlæknis.
Ef starfsmenn þínir eru verktakar skrá þeir sig sjálfir fyrir sjúklingatryggingu á eigin rekstrarleyfisnúmer. Þeir skrá sig inn á Gagnagátt á eigin kennitölu og ganga frá skráningu.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?