Sjúkratryggingar: Heilbrigðisstarfsfólk
Ég skrái mig inn á gagnagátt en fæ ekkert rekstraraðilanúmer upp, af hverju?
Ábyrgðarmaður rekstrar sem skráður er hjá embætti landlæknis þarf að skrá sig inn á gagnagátt á eigin kennitölu. Ekki er hægt að nota kennitölu rekstrar.
Ef ekkert rekstrarleyfisnúmer kemur upp kann að vera að ekki hafi verið tilkynnt um rekstur heilbrigðisþjónustu til embættis landlæknis. Það má athuga með því að fletta ábyrgðarmanni upp í rekstraraðilaskrá. Rekstraraðilaleit
Ef ekkert kemur upp má tilkynna um rekstur heilbrigðisþjónustu til embættis landlæknis á eftirfarandi slóð: Rekstur heilbrigðisþjónustu | Ísland.is
Eftir að rekstrarleyfi liggur fyrir er hægt að sækja um sjúklingatryggingu.
Ef rekstur fæst ekki skráður hjá embætti landlæknis skal heilbrigðisstarfsmaður hafa samband á netfangið sjuklingatrygging@sjukra.is
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?