Fara beint í efnið

Ég er ekki lengur sjálfstætt starfandi – hvernig hætti ég að fá pósta frá ykkur?

Póstar eru sendir út samkvæmt rekstraraðilaskrá landlæknis. Þú getur athugað hvort þú sért enn á skránni á Rekstraraðilaleit.

Ef þú ert enn á þeirri skrá, bendum við þér á að tilkynna að rekstri sé hætt á þar til gerðu eyðublaði hjá embætti landlæknis. Það getur þú gert á eftirfarandi vefslóð, sjá lið 5: Rekstur heilbrigðisþjónustu | Ísland.is

Sjúkratryggingar fá þá fljótlega rafræna staðfestingu á afskráningu rekstrar og frekari erindi vegna sjúklingatryggingar munu þá ekki berast. Ekki þarf að bregðast við erindum sem kunna að berast frá því rekstur er afskráður og þar til staðfesting á því berst Sjúkratryggingum.

Finnurðu ekki það sem þig vantar?

Hvernig getum við aðstoðað?