Spurt og svarað
Upplýsingar fyrir einstaklinga
Stafræna pósthólfið er lokað svæði á Ísland.is. Þar eru birtar og geymdar sértækar, persónulegar upplýsingar og skilaboð frá hinu opinbera til einstaklinga og fyrirtækja.
Allir einstaklingar og lögaðilar með íslenska kennitölu.
Allir einstaklingar og lögaðilar sem eiga íslenska kennitölu eignast sjálfkrafa stafrænt pósthólf sem er aðgengilegt í gegnum Mínar síður á Ísland.is. Hægt er að komast í pósthólfið með því að velja „Pósthólf“.
Með því skrá þig inn á Mínar síður á Ísland.is og velja „Pósthólf“.
Það er örugg leið fyrir upplýsingar, skjöl og önnur gögn sem stjórnvöld þurfa að koma til einstaklinga og lögaðila. Með því geta opinberir aðilar komið efni sem varðar sértæka hagsmuni einstaklinga og lögaðila á einn öruggan stað sem viðtakendur hafa stýrðan aðgang að. Stafræna pósthólfið sparar kostnað við póstburðargjöld, útprentanir og ferðalög með gögn og er því umhverfisvæn leið til samskipta á milli opinberra aðila og einstaklinga og lögaðila.
Öllum sem eiga stafrænt pósthólf ber skylda til að opna og lesa stafræna póstinn sinn. Gögnin í stafræna pósthólfinu eru frá opinberum aðilum og geta innihaldið ákvarðanir eða upplýsingar sem þarf að bregðast við. Því er nauðsynlegt að kíkja reglulega þar inn og athuga hvort nýjar sendingar hafi borist líkt og um hefðbundinn póstkassa og -lúgu sé að ræða.
Það er hægt að velja að fá tilkynningar þegar nýtt efni verður aðgengilegt í stafræna pósthólfinu. Tilkynningar eru sendar á netfangið sem þú skráir á Mínum síðum á Ísland.is. Þær verða einnig sendar í símann þinn með Ísland.is appinu.
Frá og með 1. janúar 2025 verður allt efni sem opinberir aðilar senda einstaklingum og lögaðilum og tengjast sértækum hagsmunum viðtakenda sent í stafræna pósthólfið. Fram að þeim tíma verður hægt að sjá yfirlit á Ísland.is yfir hvaða opinberir aðilar senda efni í stafræna pósthólfið og hvaða gögn þeir senda.
Fram til 1. janúar 2025, þegar stafræna pósthólfið verður að fullu innleitt, þurfa eigendur stafrænna pósthólfa (einstaklingar og lögaðilar) að fylgjast líka með því efni sem berst með hefðbundnum pósti.
Til að tengjast stafræna pósthólfinu þurfa einstaklingar og lögaðilar að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og fá þannig aðgang að eigin upplýsingum og gögnum.
Hægt er að nálgast rafræn skilríki í afgreiðslustöðum banka með því að framvísa gildum persónuskilríkjum og farsíma með íslensku símanúmeri, sjá nánar um rafræn skilríki.
Einstaklingar og lögaðilar geta óskað eftir því við opinbera aðila að fá gögn á annan hátt en í Stafrænt pósthólf. Þeir sem vilja óska eftir því skulu snúa sér til þess opinbera aðila sem um ræðir. Sömuleiðis er hægt að óska eftir bréfpósti undir stillingum á Mínum síðum Ísland.is.
Athygli er vakin á því að opinberum aðilum er heimilt að innheimta gjald óski viðtakandi eftir að fá erindi sitt líka afhent á pappír. Samkvæmt reglugerðinni um framkvæmd laganna á Stafræna pósthhólfinu er tekið fram að gjaldtaka miðast við þann viðbótarkostnað sem hlýst af umbreytingu og afhendingu gagnanna, s.s. prentun og póstsendingu. Jafnframt er þar tekið fram að í gjaldskrá birtingaraðila svigrúm að taka tillit til fötlunar sem hefur áhrif á aðgengi að stafrænum miðlum.
Ef þú getur ekki opnað eitt skjal í pósthólfi er rofin tenging við þá tilteknu stofnun, hafðu samband við þá stofnun.
Ef þú getur ekki opnað nein skjöl í pósthólfi má endilega hafa samband við Stafrænt Ísland.
Upplýsingar fyrir stofnanir
Stafrænt pósthólf er samskiptalausn sem gerir stjórnvöldum kleift að senda efni með öruggum hætti til einstaklinga og lögaðila. Einstaklingar og lögaðilar fá þar yfirlit yfir og möguleika á að skoða allt efni sem opinberar stofnanir og sveitarfélög hafa sent til þeirra.
Allt efni er geymt hjá þeim opinbera aðila sem býr það til en stafræna pósthólfið gerir einstaklingum og lögaðilum kleift að nálgast efni til skoðunar gegnum mínar síður á Ísland.is. Þegar notandi velur að skoða ákveðið efni með því að opna það í stafræna pósthólfinu birtist efnið í vefviðmóti notandans en flyst ekki þangað.
Að viðkomandi aðili komi upp öruggri tengingu á milli eigin tækniumhverfis og stafræna pósthólfsins.
Um stafræna pósthólfið gilda lög númer 105/2021. Í lögunum kemur fram að opinberir aðilar noti stafrænt pósthólf til að miðla gögnum er varða sértæka hagsmuni einstaklinga og lögaðila. Notkun stafræns pósthólfs stuðlar að hámarksöryggi við sendingu efnis frá opinberum aðilum og veitir viðtakendum aðgang að efninu á einum öruggum stað.
Opinberir aðilar, þ.e. ríki, sveitarfélög, stofnanir þeirra og aðrir opinberir aðilar, birta gögn í stafrænu pósthólfi.
Allir einstaklingar sem fá útgefna kennitölu samkvæmt lögum um skráningu einstaklinga og allir lögaðilar sem skráðir eru í fyrirtækjaskrá á hverjum tíma samkvæmt lögum um fyrirtækjaskrá hafa aðgang að sínu eigin stafræna pósthólfi.
Opinberar stofnanir, sem hafa innleitt Stafrænt pósthólf eru ábyrgar fyrir því að senda líka gögn í bréfpósti til þeirra sem hafa óskað eftir því. Hægt er að sækja upplýsingar um hverjir hafa óskað eftir því í gegnum vefþjónustu pósthólfsins eins og lýst er í skjalatilkynningum fyrir Stafrænt pósthólf.
Þjónustuskilmálar
Fjármála og efnahagsráðuneytið er rekstraraðili stafræns pósthólfs. Með því að tengjast stafrænu pósthólfi gerast opinberir aðilar og aðrir aðilar sem til þess hafa leyfi samkvæmt reglugerð um stafrænt pósthólf, svokallaðir birtingaraðilar í því.