Þjónusta Stafræns Íslands
Þjónustuframboð Stafræns Íslands stendur stofnunum og opinberum aðilum til boða. Samstarfið miðar að því að veita notendamiðaða stafræna þjónustu til einstaklinga og fyrirtækja.
Ráðgjöf
Ráðgjöf Stafræns Íslands er til þess gerð að efla stofnanir og ráðuneyti í stafrænni vegferð. Hvort sem það er að komast af stað eða að styðja vegferð sem er hafin.
Umsóknarkerfi
Umsóknarkerfi Ísland.is er öflugt verkfæri til þess að færa umsóknir til hins opinbera í notendavænt stafrænt viðmót.
Umboðskerfi
Með umboðskerfinu geta einstaklingar skráð sig inn fyrir hönd fyrirtækja, barna og þeirra einstaklinga sem hafa gefið þeim umboð.
Innskráningarþjónusta
Innskráningarþjónustan tryggir örugga innskráningu fyrir vefkerfi opinberra aðila.
Stafrænt pósthólf
Einstaklingar og lögaðilar eiga sitt stafræna pósthólf. Þar eru birtar sértækar, persónulegar upplýsingar og skilaboð frá hinu opinbera.
Vefir stofnana
Vefir stofnana eru undirvefir Ísland.is. Þeir eru sérsniðnir að þörfum notenda og veita upplýsingar um þjónustuframboð stofnunar.
Mínar síður
Á Mínum síðum geta einstaklingar og lögaðilar nálgast gögn frá ríkinu á einum stað á öruggan hátt.
Tilkynningar
Tilkynningar er mikilvægt tól fyrir stofnanir til að koma áríðandi skilaboðum til notenda sinna.
Ísland.is app
Ísland.is appið gefur notendum opinberrar þjónustu greiðan aðgang að mikilvægum gögnum og þjónustu beint úr farsímanum þegar þeim hentar.
Straumurinn (X-Road)
Straumurinn (X-Road) auðveldar samskipti milli upplýsingakerfa á öruggan hátt sem gerir stofnunum kleift að veita stafræna þjónustu.
Stafræn skírteini
Stafræn skírteini gera notendum kleift að færa sönnur á réttindi með farsímanum á öruggan hátt.
Stjórnborð
Stjórnborð Ísland.is heldur utan um notendastýringu og sjálfafgreiðslukerfi fyrir kjarnaþjónustur Ísland.is.
Ísland.is
Vefurinn Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi.