Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Auðkenni annast alla þjónustu sem tengist rafrænum skilríkjum.
Netfang: audkenni@audkenni.is
Sími 530 0000
Vefur Auðkennis og netspjall


Núna geta einstaklingar virkjað rafrænu skilríkin hvar sem er í heiminum

Auðkennisappið er auðveld, þægileg og örugg leið til að auðkenna sig á vefnum og framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Appið er hægt að nota hvar sem er í heiminum, óháð símanúmeri.

Í Auðkennisappinu er hægt að virkja rafræn skilríki með sjálfskráningu - hvar sem er.


Sjálfskráningin er framkvæmd með lífkennaupplýsingum í vegabréfi og þarf viðkomandi að:



Þú sækir Auðkennisappið í App Store eða Google Play og virkjar rafræn skilríki með lífkennum á símanum þínum eða snjalltækinu. Eftir að aðgangur hefur verið stofnaður getur þú notað Auðkennisappið til að auðkenna þig og undirrita rafæn skjöl.

Auðkennsiappið - kynningarmyndband


Þarf ég að vera með íslenskt símanúmer?

Nei, Auðkennisappið er einungis háð tækinu sem að þú setur appið upp í en ekki SIM kortinu sjálfu. Þú þarft aðeins að vera í netsambandi til að nota appið.

Af hverju eru tvö PIN-númer í appinu?

Við skráningu ertu beðin/n um að velja tvö PIN-númer.

  • PIN1 er 4-12 tölustafir og er notað til auðkenningar t.d. innskráningu í netbanka eða Ísland.is

  • PIN2 er 5-12 tölustafir og er notað fyrir rafrænar undirritanir t.d. þegar tekið er lán.

Nánari upplýsingar eru á vef Auðkennis.

Þjónustuaðili

Auðkenni