Kílómetragjald á rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla
Ef ekki er greitt
Afleiðingar þess að greiða ekki kílómetragjaldið.
Synjun um reglubundna skoðun.
Ef þú ert með gjaldfallinn reikning vegna kílómetragjalds skal skoðunarmaður neita um skoðun.Krefjast má nauðungarsölu.
Ógreitt kílómetragjald, vanrækslugjald, dráttarvextir og innheimtukostnaður hvílir sem lögveð á bílnum. Þetta veð (skuld) hefur forgang fram yfir önnur veð sem gætu verið á bílnum, til dæmis vangreidd bílalán. Það þýðir að krefjast má nauðungarsölu á bílnum upp í skuldirnar án dóms, sáttar eða fjárnáms.Framkvæma má fjárnám.
Einnig er heimilt að innheimta gjaldfallnar skuldir vegna kílómetragjalds og vanrækslugjalds með fjárnámi hjá skráðum eiganda eða umráðamanni án dóms, sáttar eða fjárnáms.
Þjónustuaðili
Skatturinn