Forvarnarstarf sjálfsvíga getur verið flókið enda eru áhættuþættirnir margir en um að ræða samspil líkamlegra, umhverfis- og félagslegra þátta. Bakgrunnur og orsakaferli á bak við hvert sjálfsvíg er mismunandi, rétt eins og saga hvers einstaklings er einstök á sinn hátt. Þar geta spilað inn í félagslegar aðstæður, skyndileg áföll, missir eða langvarandi streita, persónuleikaþættir sem kunna að einkennast af reiði og hvatvísi, óhófleg áfengis- og vímuefnaneysla, þunglyndi og/eða mikill kvíði og vanlíðan.
Samvinna er lykilatriði í sjálfsvígsforvörnum og árangri verður best náð með þátttöku alls samfélagsins. Uppbygging tengslanets, samvinna á sviði rannsókna, þekkingarsköpunar með öðrum löndum stuðlar einnig að árangri til lengri tíma.
Gulur september er samstarf stofnana og félagsamtaka um vitundarvakningu um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna.
Ísland tekur þátt í norrænu samstarfi um geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir, m.a í gegnum Norrænu ráðherranefndina.
JA ImpleMENTAL er samevrópskt rannsóknarverkefni styrkt af H2020 rammaáætlun (JA-02-2020/HADEA). Um tuttugu Evrópuþjóðir tóku þátt í verkefninu ásamt Íslandi. Fulltrúar Íslands í verkefninu komu meðal annars frá heilbrigðisráðuneytinu og embætti landlæknis.
Verkefnið stóð yfir frá 2021 til 2024. Verkefnið var viðamikið en Ísland tók þátt í þeim hluta þess sem snýr að því að innleiða þekkingu í sjálfsvígsforvörnum byggt á austurríska forvarnarmódelinu “SUPRA”.
Embætti landlæknis er aðili að IASP samtökunum. Haldið er uppá Alþjóðlegan forvarnardag sjálfsvíga 10. september ár hvert. Markmið dagsins er að vinna að sjálfsvígsforvörnum, styðja aðstandendur og halda á lofti minningu þeirra sem dáið hafa i sjálfsvígi. Á Íslandi vinna fulltrúar eftirfarandi stofnana og félagasamtaka að því að halda upp á daginn: Embætti landlæknis, Geðhjálp, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landspítalinn – BUGL, Landspítalinn – Geðsvið, Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna, Minningarsjóður Orra Ómarssonar, Píeta samtökin, Rauði krossinn, SÁÁ, Sorgarmiðstöð, Þjóðkirkjan og Þróunarmiðstöð heilsugæslunnar.