Fara beint í efnið

Frá árinu 2018 hefur verið unnið eftir samþykktri aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi. Aðgerðirnar skipast í 6 efnisflokka:

  1. Efling geðheilsu og seiglu í samfélaginu

  2. Gæðaþjónusta á sviði geðheilbrigðis

  3. Takmörkun á aðgengi að hættulegum efnum, hlutum og aðstæðum

  4. Aðgerðir til að draga úr áhættu meðal sérstakra áhættuhópa

  5. Stuðningur við aðstandendur og eftirlifendur

  6. Efling þekkingar á sviði sjálfsvíga og sjálfsvígsforvarna

Aðgerðirnar eru samtals 56 talsins. Flestar aðgerðir eru á ábyrgð heilbrigðisráðuneytisins. Staða aðgerðaráætlunarinnar er sú að náðst hefur að klára nokkrar aðgerðir, sumar aðgerðir eru í vinnslu en aðrar eru á bið.

Aðgerðirnar eru unnar í samvinnu margra stofnana og félagasamtaka. Verkefnastjórnun er í höndum verkefnastjóra Lífbrúar – miðstöðvar sjálfsvígsforvarna hjá embætti landlæknis.

Upplýsingar um stöðu aðgerðaáætlunar má fá hjá lifsbru@landlaeknir.is

Þjónustuaðili

Embætti land­læknis