Sjálfsvígsforvarnir
Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna
Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígforvarna var stofnuð árið 2023 og formlega kynnt í byrjun árs árið 2024. Hún er starfrækt undir merkjum embættis landlæknis sem ber ábyrgð á sjálfsvígsforvörnum á Íslandi og faglegur ráðgjafi stjórnvalda á þessu sviði.
Markmið Lífsbrúar er að fækka sjálfsvígum á Íslandi í samræmi við aðgerðáætlun stjórnvalda í málaflokknum. Hjá Lífsbrú er unnið að aðgerðum á öllum stigum sjálfsvígsforvarna þ.e forvörnum, íhlutun og stuðningi eftir sjálfsvíg.
Nánari upplýsingar um Lífsbrú - miðstöð sjálfsvígsforvarna: lifsbru@landlaeknir.is
Lífsbrú – miðstöð sjálfsvígsforvarna hyggst ná markmiðum sínum með breiðri samvinnu stjórnvalda, fagfólks, notenda, stofnana og félagasamtaka en einnig með fjáröflun til sjálfsvígsforvarna. Í því skyni hefur verið stofnaður sjóður með sama nafni.
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis