Straumurinn (X-Road)
Umsókn um Strauminn

Tilgangur umsóknar um Strauminn
Mikilvægt er að hafa skýran tilgang fyrir aðild að Straumnum og uppsetningu á X-Road öryggisþjónum. Tilgangurinn ætti að vera tengdur við ákveðin verkefni, svo sem innleiðingu á þjónustum Stafræns Íslands.
Sótt um samstarf
Umsókn um aðgang að Straumnum hefst með samstarfsbeiðni til Stafræns Íslands.
Umsókn að Straumnum ætti að vera lögð fram af einstaklingi sem gegnir ábyrgðarstöðu hjá umsækjanda (helst prókúruhafi). Ástæðurnar fyrir þessu eru tvær:
Traust milli samstarfsaðila er grundvallaratriði í Straumnum, og því er nauðsynlegt að umsóknin njóti stuðnings og sé kunnug stjórnendum umsækjanda.
Það auðveldar sannreyningu á lögmæti umsóknar f.h. Umsækjanda
Í umsókninni er mikilvægt að tilgreina bæði stjórnunarlegan og tæknilegan tengilið, sjá neðar.
Umsókn móttekin og samþykkt af Stafrænu Íslandi
Stafrænt Ísland metur umsóknina. Á þessu stigi hefur Stafrænt Ísland boðið upp á almenna kynningu á Straumnum / X-Road fyrir umsækjendur.
Við samþykkt umsóknar þarf að liggja fyrir ákvörðun um uppsetningu, rekstrarfyrirkomulag og hýsingu þeirra X-Road öryggisþjóna sem umsækjandi hyggst nýta, hvort sem er í eigin umhverfi eða með aðstoð þriðja aðila.
Athugið að Stafrænt Ísland mælir gegn ákveðnum rekstrarfyrirkomulögum þar sem þau torvelda rekstur Straumsins.
Uppsetning, umsókn um skilríki og auðkenning öryggisþjóna
Umsækjandi setur upp öryggisþjóna er hann hyggst nýta, annað hvort sjálfur eða í samstarfi við þriðja aðila.
Eftir uppsetningu þarf að skrá þjónana í Miðjuna til að tengja þá við Strauminn. Það er gert með því að senda skráningar beiðni á rekstraraðila “Miðjunar” sem eru Opin Kerfi. Opin Kerfi útvega nauðsynleg skilríki og upplýsingar til að auðkenna þjónana í inn Straumnum.
ATH: Þessi skráning þarf að koma frá tæknilega tengiliðnum sem tilgreindur var þegar sótt var um samstarf.
Frekari leiðbeiningar um uppsetningu og skráningu öryggisþjóna í Strauminn.
Hönnun og þróun vefþjónusta
Umsækjandi ber ábyrgð á þróun, viðhaldi og rekstri sinna vefþjónusta sem tengjast Straumnum (X-Road). Umsækjandi skráir þessar þjónustur í sinn öryggisþjón og getur veitt öðrum aðilum Straumsins aðgang að þeim, ef hann svo kýs eða tengst þjónustum annara aðila Straumsins, eftir því sem við á.
Athugið að hönnun og útfærsla vefþjónusta er sjálfstætt ferli, ótengt þessu umsóknar- og skráningarferli, en Stafrænt Ísland mælist til þess að aðilar sem hyggjast bjóða upp á vefþjónustur í Straumnum kynni sér vefþjónustustefnu Stafræns Íslands.