Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Hvað þarf stofnun að gera

Ávinningur fyrir stofnanir

Mínar síður Ísland.is er þjónustugátt fyrir allar stofnanir sem þurfa að koma upplýsingum eða þjónustu til notenda sinna. Viðmótið er notendavænt þar sem passað er upp á aðgengi. Viðmótið er á tölvulesanlegu formi, það skalast vel í síma og er með tungumála stuðningi.

Með því að nýta sér Mínar síður Ísland.is þarf stofnun ekki að innleiða innskráningar og umboðskerfi.

Mínar síður safna ekki neinum gögnum heldur sækja gögn til stofnunar á öruggan hátt í gegnum vefþjónustur þar sem x-road er notað fyrir örugg samskipti. Stofnun býr til vefþjónustur og vinnur síðan með hönnunarteymi Stafræns Íslands við það að ákveða hvernig gögnin birtast notandanum.

Hvaða hlutverki gegnir Stafrænt Ísland:

Mínar síður Ísland.is er í boði fyrir stofnanir þeim að kostnaðarlausu. Stafrænt Ísland sér um rekstur og viðhald framendans ásamt því að tryggja uppitíma og öryggi innskráningar og umboðskerfis. Stofnunin þarf að tryggja uppitíma vefþjónusta.

Hönnunar- og efnisstefna Stafræns Íslands er notuð en framendinn er þróaður í samstarfi við stofnun. Stafrænt Ísland getur aðstoðað við uppsetningu og þróun á vefþjónustum ef þess er óskað.