Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Gerast áhrifavaldur Stafræns Íslands

Hvernig virkar þetta?

  1. Þú skráir þig sem áhrifavald með nafni, netfangi og kennitölu í formið hér neðar.

  2. Allir sem skrá sig geta tekið þátt. Þó eru ekki allar þjónustur sem eiga við um alla. Til dæmis gætu höfuðborgarbúar ekki prófað breytingar á Loftbrú.

  3. Þegar ný stafræn þjónusta er tilbúin í rýni áhrifavalda er sendur tölvupóstur á hópinn.

  4. Áhrifavaldar prófa stafrænu þjónustuna og svara tölvupóstinum með athugasemdum um það sem virkar vel sem og það sem mætti bæta.

  5. Stafræn þjónusta er þróuð áfram í framhaldi af endurgjöf frá áhrifavöldum.

  6. Stafræn þjónusta er gerð aðgengileg almenningi.

Áhrifavaldur getur hvenær sem er hætt þátttöku með því að senda tölvupóst á island@island.is.

Gerast áhrifavaldur Stafræns Íslands

Afhverju þarf tölvupóst?

Þegar kemur að því að prófa nýja stafræna þjónustu er sendur tölvupóstur á hóp áhrifavalda.

Afhverju þarf að skrá kennitölu?

Áhrifavaldar fá aukin réttindi sem tengd eru kennitölum. Þetta er gert með falinni virkni (Feature Flagging) sem krefst auðkenningar og er aðeins aðgengileg forskráðum áhrifavöldum.