Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Suðurlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Heimahjúkrun

Til að sækja um heimahjúkrun fyrir íbúa á þjónustusvæði HSU utan Árborgar eða heimaþjónustu (Íbúar Árborgar) þarf að fylla inn eyðublað og senda rafrænt í gegnum gagnagátt HSU.

Heimahjúkrun

Beiðni um heimahjúkrun og heimaþjónustu getur komið frá sjúklingi sjálfum, aðstandendum, sjúkrahúsum eða öðrum stofnunum. Hjúkrunarfræðingar ásamt fagaðila frá félagsþjónustu aldraðra meta þörf einstaklings fyrir heimahjúkrun. Heimahjúkrun er fyrir þá sem búa heima og þurfa reglulega þjónustu, til dæmis vegna sjúkdóma eða í kjölfar veikinda og slysa. Þjónustan getur falið í sér:

  • Almenna aðhlynningu og eftirlit með andlegu og líkamlegu heilsufari

  • Lyfjagjöf

  • Sáraumbúðaskipti

Heimahjúkrun er fyrir einstaklinga á öllum aldri sem búa í heimahúsum og eru í þörf fyrir einstaklingshæfða og markvissa hjúkrun til að geta lifað sem eðlilegustu lífi.

Markmið heimahjúkrunar er að veita einstaklingshæfða, markvissa, árangursríka og faglega heimahjúkrun, með það að markmiði að gera þeim, sem þjónustunnar njóta, kleift að búa heima við sem eðlilegastar aðstæður þrátt fyrir veikindi, heilsubrest eða öldrun.
Við heimahjúkrun starfa hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar eftir því hver þörfin er í samvinnu við heimilslækna. Mikið samstarf er einnig við félagsþjónustu og veitendur annarrar stoðþjónustu.

Eftir að óskað hefur verið eftir heimahjúkrun og viðkomandi metin í heimahjúkrun þá mun hjúkrunarfræðingur hafa samband og koma í vitjun.

Ákvörðun um að veita heimahjúkrun byggist á mati hjúkrunarfræðings sem byggt er á upplýsingasöfnun. Áhersla er lögð á að meta hvort og hvernig heimahjúkrun mun bæta/styðja við heilbrigði einstaklingsins og fjölskyldu hans.

Heimaþjónusta í Árborg

Heimaþjónusta í Árborg er samþætt og er veitt af Heilbrigðisstofnun Suðurlands og sveitarfélaginu Árborg. Með heimaþjónustu er átt við þjónustu sem er veitt í heimahúsi (heimahjúkrun, félagsleg stuðningsþjónusta, heimaendurhæfing). Umsóknir eru teknar fyrir á sameiginlegum fundum móttöku- og matsteymi heimaþjónustu þar sem fulltrúar heimahjúkrunar HSU, félagslegrar stuðningsþjónustu Árborgar og heimaendurhæfingu taka fyrir umsóknir.