Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 21. apríl 2025

Breytingareglugerð

1200/2024

Reglugerð um breytingu á reglugerð um skiptingu kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga í kosningum, nr. 442/2024.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar:

  1. Á eftir 1. málsl. 2. mgr. kemur nýr málsliður, 2. málsl., sem orðast svo: Við alþingiskosningar 2024 skal ríkissjóður greiða hverju sveitarfélagi 940 kr. fyrir hvern kjósanda á kjörskrá í viðkomandi sveitarfélagi og 699.200 kr. fyrir hvern kjörstað.
  2. Á eftir orðinu "forsetakosningum" í 3. mgr. kemur: og alþingiskosningum.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 139. gr. kosningalaga, nr. 112/2021, öðlast þegar gildi. Ákvæði 7. gr. reglugerðarinnar skal tekið til endurskoðunar fyrir árslok 2025.

Dómsmálaráðuneytinu, 25. október 2024.

F. h. r.

Haukur Guðmundsson.

Bryndís Helgadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.