Prentað þann 5. des. 2024
614/2019
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1256/2018 um einnota áhöld og efni vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sérgreinalækna sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
1. gr.
Í stað dagsetningarinnar "30. júní 2019" í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2019.
2. gr.
Í stað dagsetningarinnar "30. júní 2019" í 7. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2019.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 26. júní 2019.
F. h. r.
Vilborg Hauksdóttir.
Elsa B. Friðfinnsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.