Prentað þann 23. nóv. 2024
420/2019
Reglugerð um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu.
1. gr.
Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu eftir því sem kveðið er á um í reglugerð þessari. Virðisaukaskattur og gistináttaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 2. gr. Virðisaukaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 3. og 4. gr.
2. gr.
Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði á þjónustusvæði A í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:
1. | Almennt gjald | kr. | 1.750 | |
2. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 1.000 | |
3. | Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar | kr. | 1.500 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.
Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði á þjónustusvæði B í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:
1. | Almennt gjald | kr. | 1.500 | |
2. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 800 | |
3. | Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar | kr. | 1.250 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.
Gjald fyrir hverja gistieiningu í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl á þjónustusvæðum A og B er 500 kr. á nótt.
Gjald fyrir gistingu í skála A í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:
1. | Almennt gjald | kr. | 5.000 | |
2. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 2.500 | |
3. | Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar | kr. | 4.000 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.
Gjald fyrir gistingu í skála B í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:
1. | Almennt gjald | kr. | 4.000 | |
2. | Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 2.000 | |
3. | Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar | kr. | 3.250 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.
3. gr.
Gjald fyrir aðra þjónustu:
1. | Sturtugjald, eitt skipti | kr. | 300 | |
2. | Rafmagn á tjaldsvæði, pr. sólarhring | kr. | 1.000 | |
3. | Afnot af þvottavél, eitt skipti | kr. | 500 | |
5. | Afnot af þurrkara, eitt skipti | kr. | 500 | |
5. | Afnot af aðstöðu í skála, einn dagur (án gistingar) | kr. | 500 | |
6. | Útseld vinna sérfræðinga | kr. | 16.000 | |
7. | Útseld vinna landvarða | kr. | 12.000 | |
8. | Útgáfa leyfa, stór verkefni | kr. | 50.000 | |
9. | Útgáfa leyfa, lítil verkefni | kr. | 10.000 | |
10. | Aðgangur að íshellum, pr. mann | kr. | 1.000 | |
Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum | kr. | 500 |
Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að íshellum er gjaldfrjáls.
Sturtugjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi á þjónustusvæði A, sbr. 2. gr.
4. gr.
Svæðisgjald í Skaftafelli (sólarhringsgjald frá kl. 00.00 - 24.00):
1. | Flokkur A - Fólksbifreið, 5 manna og færri | kr. | 750 | |
2. | Flokkur B - Fólksbifreið, 6-9 manna | kr. | 1.000 | |
3. | Flokkur C - Rúta, 10-18 manna | kr. | 1.800 | |
4. | Flokkur D - Rúta, 19-32 manna | kr. | 3.500 | |
5. | Flokkur E - Rúta, 33-64 manna | kr. | 6.400 | |
6. | Flokkur F - Rúta, 65 manna og fleiri | kr. | 9.000 | |
7. | Bifhjól | kr. | 300 |
Svæðisgjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi, sbr. 2. gr.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 715/2018 um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu.
Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 6. maí 2019.
F. h. r.
Sigríður Auður Arnardóttir.
Stefán Guðmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.