Þegar þú sækir um lífeyri er mögulegt að sækja um heimilisuppbót í leiðinni. Hún er hluti af umsóknarferlinu og er afgreidd á sama tíma og þú færð aðrar greiðslur lífeyris.
Hins vegar getur réttur á heimilisuppbót skapast eftir að lífeyrisgreiðslur hefjast. Þá er hægt að fylla út sér umsókn um heimilisuppbót á Mínum síðum.
Svona sækir þú um
Smelltu á Sækja um
Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum
Veldu Umsóknir
Veldu umsóknina Heimilisuppbót
Fylltu út umsóknina og hengdu við fylgigögn ef þú ert með þau tiltæk.
Smelltu á Senda umsókn
Athugaðu að skrá frá hvaða tíma sótt er um.
Afturvirkni umsókna
Heimilisuppbót er greidd frá fyrsta degi næsta mánaðar eftir að skilyrði eru uppfyllt. Hægt er að sækja um allt að tvö ár afturvirkt.
Vinnslutími umsóknar
Vinnslutími umsókna um heimilisuppbót er allt að 4 vikur. Ef sótt er um afturvirkt getur vinnslutíminn tekið lengri tíma.
Þú getur fylgst með stöðu umsókna á Mínum síðum undir Staða umsókna. Ef það vantar gögn færðu tölvupóst og tilkynningu á Mínum síðum undir Mín skjöl
Niðurstaða
Þegar niðurstaða liggur fyrir færðu tölvupóst og tilkynningu á Mínum síðum TR undir Mín skjöl.
Þar getur þú einnig séð upphæðir út árið í greiðsluáætlun.
Ef þú ert ósammála ákvörðuninni getur þú:
óskað eftir rökstuðningi á Mínum síðum TR,
sent erindi til umboðsmanns viðskiptavina TR,
Greiðslur heimilisuppbótar
Heimilisuppbót er fyrirframgreidd fyrsta dag hvers mánaðar með öðrum lífeyrisgreiðslum.
Ef greiðslur eru samþykktar afturvirkt er inneign greidd út eins fljótt og auðið er á þann bankareikning sem skráður er á Mínar síður.
Heimilisuppbót - algengar spurningar
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun