Heimilisuppbót er viðbót við lífeyrisgreiðslur. Hún bætist ofan á lífeyri örorku, - endurhæfingar- og ellilífeyrisþega sem búa einir á Íslandi.
Almennt
Þú þarft að vera:
einhleyp/ur, hvorki í sambúð né hjónabandi,
Þú getur fengið heimilisuppbót ef þú býrð:
í eigin húsnæði,
í leiguhúsnæði,
með börnum undir 18 ára aldri,
með ungmenni á aldrinum 18 til 25 ára í námi eða starfsþjálfun,
gift/ur en maki býr á hjúkrunarheimili.
Húsnæðis- og búsetuskilyrði
Heimili þitt verður að hafa eldunar- og salernisaðstöðu til einkanota.
Ef þú deilir eldunar- eða salernisaðstöðu með öðrum telstu ekki búa ein/n.
Þú verður að hafa lögheimili þar sem þú býrð.
Ótilgreint lögheimili
Ef þú býrð á stað, þar sem ekki er hægt að skrá lögheimili, þarftu að skrá lögheimili ótilgreint í Þjóðskrá. Til dæmis ef þú býrð á gistiheimili, í sumarbústað eða álíka stað þar sem ekki er mögulegt að skrá lögheimili.
Opinber aðili á vegum sveitarfélagsins þarf að staðfesta búsetu þína til TR. Til dæmis sveitarstjóri, félagsráðgjafi, læknir eða annar opinber aðili.
Tilkynna breytingar
Mikilvægt er að tilkynna breytingar á búsetu þinni til TR. Til dæmis ef þú flytur, ferð í sambúð eða einhver flytur lögheimilið sitt til þín.
Heimilisuppbót - algengar spurningar
Þjónustuaðili
Tryggingastofnun