Skráningareglur ökutækja
Þjónustuaðili:
Gildir frá: 01.06.2024. Skráningareglur ökutækja eru fyrir fagaðila sem sinna skráningum í umboði Samgöngustofu eða tilkynna breytingar í ökutækjaskrá samkvæmt lögum.
Nýskráningar (fyrsta skráning hérlendis)
Eftirtaldir aðilar geta gert samning um að vinna í umboði Samgöngustofu hvað varðar móttöku umsókna um nýskráningu og tilkynningu til Samgöngustofu um nýskráningu (kallaðir þjónustuaðilar):
Faggiltar skoðunarstofur ökutækja
Umboð (ökutækja) með fulltrúa A
Efni kaflans
Nýskráning ökutækis
Heimilt er að nýskrá ökutæki sem aldrei hefur verið áður skráð hérlendis sem hlotið hefur viðurkenningu til markaðssetningar hérlendis og sem stenst viðeigandi skoðun vegna skráningar.
Umsókn um nýskráningu er annað hvort útbúin í tölvukerfum þjónustuaðila (og send með vefþjónustum til Samgöngustofu) eða á eyðublaði sem framvísað er hjá þjónustuaðila.
Móttaka stafrænna umsókna
Samgöngustofa hefur það að markmiði að gera þjónustu sína stafræna og hvetur því til þess að þjónustuaðilar velji þann kost í þessum samskiptum.
Móttaka umsókna á pappír
Ökutæki þarf að vera skráð á forskrá og þar með hafa fengið úthlutað fastnúmeri. Það má ekki vera með breytingalás sem læsir nýskráningu.
Við móttöku umsóknar um nýskráningu (US.107) er gengið úr skugga um að hún sé í frumriti, hún sé rétt útfyllt og öll skilyrði skráningar uppfyllt. Ef umsókn er ekki skráningarhæf (t.d. rangar upplýsingar, óljósar eða yfirstrikanir) skal vísa henni frá og leiðbeina viðskiptavini um það sem lagfæra þarf.
Eigandi og undirritun: Eigandi (kaupandi), meðeigendur og umráðendur (ef við á) skulu undirrita eða undirrita samkvæmt umboði (sjá neðar). Undirskriftir skulu vottaðar af a.m.k. einum vitundarvotti.
Innflytjandi og undirritun: Innflytjandi (umráðandi á forskrá) skal undirrita eða undirrita samkvæmt umboði (sjá neðar). Ef um er að ræða fulltrúaskoðað ökutæki skal fulltrúi umboðs með fulltrúaréttindi B undirrita.
Dagsetning nýskráningar: Nýskráningardagsetning er sú dagsetning þegar nýskráning er framkvæmd. Óheimilt er að nýskrá ökutæki aftur í tímann.
Tryggingafélag: Tilgreina skal tryggingafélag ökutækis, nema það sé eftirvagn, og skráist tryggingafélagið í ökutækjaskrá við nýskráningu.
Í umboði skal koma fram efni umboðs, fastanúmer ökutækis, nafn og kennitala umboðsmanns, undirritun umbjóðanda, tveir vitundarvottar, staður og dagsetning. Umbjóðandi, umboðsmaður og vitundarvottar skulu allir að vera orðnir 18 ára.
Uppfylli umsókn framangreind formskilyrði er hún móttekin, greiðslustimpluð af þjónustuaðila og tilkynnt um nýskráningu að öðrum skilyrðum uppfylltum (sjá neðar). Fyrir rekjanleika skráir Samgöngustofa þjónustuaðila og móttökudag umsókna í ökutækjaskrá.
Tilkynning til Samgöngustofu um nýskráningu
Áður en tilkynnt er um nýskráningu til Samgöngustofu þarf þjónustuaðili til viðbótar að ganga úr skugga um að eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt:
Skoðun vegna skráningar: Ökutækið skal hafa staðist viðeigandi skoðun vegna skráningar hjá skoðunarstofu eða hjá umboði á síðustu þremur virkum dögum. Þetta gildir þó ekki hafi verið settur Nýskráningarlás (3) á ökutækið því þá getur Samgöngustofa þurft á lengri tíma að halda til að tryggja að öll skilyrði nýskráningar séu uppfyllt.
Skráningarmerki: Þau verða að hafa verið skráð móttekin hjá þjónustuaðila (mega vera móttekin á einhverjum öðrum geymslustað hans). Við nýskráningu afhendast skráningarmerkin á ökutækið (í ökutækjaskrá). Réttur skoðunarmiði skal settur á skráningarmerki ökutækisins miðað við skoðunarreglu þess.
Tollafgreiðsla: Ökutæki skal vera tollafgreitt áður en óskað er eftir nýskráningu. Óheimilt er að nýskrá ökutæki án tollafgreiðslu nema fyrir liggi skrifleg heimild frá tollstjóra.
Skattflokkur 70-79: Ef ökutæki er skráð í skattflokk á bilinu 70 - 79 er óheimilt að nýskrá það og sér Skatturinn (tollasvið) um að aflétta honum (sjá breytingalása).
Breytingalás: Ef ökutæki er skráð með breytingalás sem læsir nýskráningu er óheimilt að nýskrá það. Lásar sem læsa nýskráningu eru Nýskráningarlás (3) og Skráningarlás v/vörugjalds (7).
Tengibúnaður: Tilkynna þarf sérstaklega ef tengibúnaður er á ökutæki. Tilkynnt er um tengibúnað frá fulltrúa A á US.129 (gerðarviðurkenndur tengibúnaður frá framleiðanda), frá fulltrúa C á US.112 (þjóðargerðarviðurkenndur tengibúnaður) og frá skoðunarstofu (US.111) (allar gerðir tengibúnaðar).
Tjónaökutæki: Óheimilt er að nýskrá ökutæki sem skráð er tjónaökutæki. Áður en nýskráning er heimil verður að ógilda tjónaskráninguna.
Tímarammi: Tíminn sem líður á milli forskráningar og nýskráningar á ökutæki má öllu jöfnu ekki vera meira en 12 mánuðir (undantekning á því er t.d. síðustu ökutæki gerðar (e. end-of-series). Ef veigamiklar breytingar hafa átt sér stað á reglugerðum (íslenskum sem erlendum) sem tengjast skráningu ökutækja (s.s. breyttar mengunarkröfur, auknar búnaðarkröfur o.s.frv.) er gerð krafa um að nýskráning ökutækis eigi sér stað áður en breyttar kröfur taka gildi (tiltekið í athugasemd í ökutækjaskrá). Ef nýskráning er á pappírsformi skal skila frumriti af henni innan 10 virkra daga til Samgöngustofu.
Að uppfylltum framangreindum skilyrðum öllum er þjónustuaðila heimilt að tilkynna Samgöngustofu um nýskráningu.
Þjónustuaðili getur óskað eftir leiðréttingu á framkvæmdri nýskráningu en slík beiðni verður að berast Samgöngustofu innan viku frá skráningardegi. Samgöngustofu er heimilt að fella niður skráningu ef beiðni berst um það samdægurs á afgreiðslutíma Samgöngustofu. Nýskráningargjald er ekki endurgreitt við niðurfellingu skráningar.
Gjaldtaka
Gjald Samgöngustofu fyrir nýskráningu á öktæki er nýskráningargjald 5.827 krónur og einnig skal innheimta umferðaröryggisgjald 500 krónur.
Greiða þarf gjaldfallin vörugjöld af ökutækinu sem er til nýskráningar (breytileg).
Gjald Samgöngustofu fyrir leiðréttingu á nýskráningu er 1.071 króna.
Tölvuvinnsla
Þjónustuaðilar tilkynna nýskráningu í gegnum vefþjónustu eða skeytaþjónustu. Þeir sem eru með aðgang að biðskrá undirbúa nýskráninguna í biðskrá Ekju, skrá hana í bið og senda svo beiðni um nýskráningu á netfangið skraning hjá Samgöngustofu. Starfsmaður SGS samþykkir þá nýskráninguna og staðfestir með því að svara tölvupóstinum. Einnig má mæta með nýskráningarbeiðni á pappírsformi í afgreiðslu Samgöngustofu að undangenginni skoðun.
Efni kaflans
Ófullgerð ökutæki
Heildargerðarviðurkennt ökutæki má framleiða í fleiri einu smíðaþrepi. Almennt er ekki heimilt að taka slíkt ökutæki í almenna notkun fyrr en loknu síðasta smíðaþrepinu en undantekningar geta verið á því.
Fjölþrepa gerðarviðurkenning (e. multi stage) er aðferð til að viðurkenna einstök smíðaþrep ökutækis. Grunnökutæki er samkvæmt þessari skilgreiningu ökutæki sem vottað er á fyrsta þrepi fjölþrepa gerðarviðurkenningar.
Ófullgert ökutæki (e. incomplete) er þá ökutæki sem vantar eitt þrep hið minnsta til að geta talist fullgert og uppfyllir viðeigandi tæknilegar kröfur reglugerðarinnar (en þó ekki allar kröfur hennar).
Fjölþrepa fullgert ökutæki (e. completed) er ökutæki sem búið er að fara í gegnum öll þrep fjölþrepa gerðarviðurkenningar og uppfyllir allar viðeigandi tæknilegar kröfur reglugerðarinnar.
Ferli nýskráningar
Nýskráning ófullgerðs ökutækis heimil
Heimilt getur verið að nýskrá ökutæki þótt það sé enn ófullgert, notkun þess í almennri umferð verður þó óheimil nema í tengslum við það að klára smíðina. Þegar nýskráning er metin heimil benda gögn til þess að ökutækið sé að mestu fullbúið og tilbúið til aksturs. Ekki má vera byrjað á næsta smíðaþrepi (ökutækið verður að vera í því ástandi sem framleiðandi skilaði því). Í þessum tilvikum eru eftirfarandi takmarkanir í ökutækjaskrá (skráðar inn við forskráningu):
Notkunarflokkurinn "Ófullgert ökutæki". Það þýðir að klára þarf smíði ökutækisins áður en heimilt er að nýskrá það eða taka það í almenna notkun, eftir atvikum.
Gefinn er allt að 6 mánaða frestur til að klára smíðina og því er þessi athugasemd skráð "Notkun aðeins heimil í tengslum við lokasmíði, þó aldrei lengur en í 6 mánuði frá nýskráningu".
Ef að mati Samgöngustofu eru líkur á að byrjað verði á næsta smíðaþrepi fyrir nýskráningu er settur á nýskráningarlás. Umráðandi þarf að snúa sér til Samgöngustofu fyrir nýskráningu með að taka lásinn af.
Þar sem ökutækið er heildargerðarviðurkennt þá skal það fært til fulltrúaskoðunar eða samanburðarskoðunar, eftir atvikum, og svo nýskráð með hefðbundnum hætti að skilyrðum uppfylltum. Við fulltrúaskoðun eða samanburðarskoðun skal skoðun og skráningu ekki hafnað á grundvelli þess að reitir séu óútfylltir í ökutækjaskrá (t.d. lengd, breidd, eigin þyngd og farþegafjöldi), enda þyki ljóst að gildi reitanna sé háð því sem gerist á næstu smíðaþrepum og verði skráð að loknu síðasta smíðaþrepinu.
Nýskráning ófullgerðs ökutækis ekki heimil
Þegar nýskráning er ekki heimil á ófullgerðu ökutæki benda gögn til þess að ökutækið sé ekki hæft til aksturs í almennri umferð enda eigi mikið eftir að gera til að klára smíði þess. Þá eru eftirfarandi takmarkanir í ökutækjaskrá (skráðar inn við forskráningu):
Notkunarflokkurinn "Ófullgert ökutæki". Það þýðir að klára þarf smíði ökutækisins áður en heimilt er að nýskrá það eða taka það í almenna notkun, eftir atvikum.
Nýskráningarlás. Það þýðir að ekki er heimilt að nýskrá ökutækið fyrr en lásinn hefur verið tekinn af, í þessu tilviki að klára smíðina.
Til að heimilt sé að nýskrá ökutæki í þessum tilvikum þarf að klára smíðina og tilkynna inn breytingu á því yfir í fullgert ökutæki. Viðurkenningu þessara ökutækja verður breytt úr því að vera gerðarviðurkennt yfir í það að vera skráningarviðurkennt. Færa þarf ökutækið til skráningarskoðunar hjá skoðunarstofu eftir að lásinn hefur verið tekinn af og það svo nýskráð með hefðbundnum hætti að skilyrðum uppfylltum.
Ferli breytingar yfir í fullgert ökutæki
Síðasta (eða síðustu) smíðaþrep getur verið gert af eftirfarandi aðilum. Þeir eru kallaðir framleiðendur á seinni smíðaþrepum.
Framleiðandi á seinni smíðaþrepum sem hlotið hefur gerðarviðurkenningu á smíðinni og getur þar af leiðandi gefið út samræmisyfirlýsingu (CoC vottorð) um að smíði á fullgerðu ökutæki sé lokið.
Framleiðandi á seinni smíðaþrepum sem hefur ekki viðurkenningu. Þá verður smíðin að uppfylla þær kröfur sem gilda um ökutækið og búnað þess miðað við ökutækisflokk og notkunarflokk. Framleiðandinn verður að útfylla sérstaka skýrslu með lýsingum á breytingunum og þar sem hann staðfestir ýmis gildi um ökutækið (fyrirmynd á US.XXX). Staðfesting á samræmi við kröfur verður að koma frá óháðum rannsóknaraðila, yfirleitt er það viðurkennd tækniþjónusta en getur líka verið aðili sem Samgöngustofa samþykkir.
Öll gögn vegna lokasmíðaþrepa (svo sem CoC vottorð um lokasmíði eða skýrslur og staðfestingar) þarf Samgöngustofa að samþykkja til að ökutæki verði breytt yfir í fullsmíðað ökutæki (notkunarflokki breytt og athugasemdir og/eða nýskráningarlás tekinn út).
Dæmi um ófullgerð ökutæki
Yfirleitt eru ófullgerð ökutæki afhent þannig frá framleiðanda vegna þess að notkun þeirra krefst sérstakrar smíði sem er ekki hluti af raðsmíði.
Bifreið sem framleidd er sem undirvagn fyrir húsbifreið. Framleiðandi skilar þá af sér vörubifreið á grind með eða án stýrishúss. Lokasmíði felst þá í því að smíða húsið og breyta ökutækisflokki í fólksbifreið sem er sérútbúin til íbúðar.
Bifreið sem framleidd er í ökutækisflokk vörubifreiðar fyrir einhverskonar yfirbyggingu eða áfastan búnað. Framleiðandi skilar þá af sér hefðbundinni vörubifreið án nokkurskonar yfirbyggingar (vantar kassa, tank eða annað). Lokasmíðin felst þá í því að festa á yfirbyggingu eða áfastan búnað við grind vörubifreiðarinnar samkvæmt fyrirmælum upphaflegs framleiðanda hennar.
Bifreið sem framleidd er í ökutækisflokk sendibifreiðar, vörubifreiðar eða jafnvel hópbifreiðar, sem er tilbúin fyrir innréttingar sem hópbifreið (án sæta). Framleiðandinn skilar þá af sér bifreið sem er að flestu leyti tilbúin nema það á eftir að setja í hana sæti og aðrar innréttingar svo hún verði hópbfreið. Mögulega getur átt eftir að skera úr fyrir gluggum eða setja rúður í göt sem eru ætluð til þess.
Gjaldtaka
Gjald Samgöngustofu fyrir yfirferð gagna vegna breytinga yfir í fullgert ökutæki er 11.008 krónurá klukkutíma, að lágmarki hálftími.