Skráningareglur ökutækja
Þjónustuaðili:
Gildir frá: 01.06.2024. Skráningareglur ökutækja eru fyrir fagaðila sem sinna skráningum í umboði Samgöngustofu eða tilkynna breytingar í ökutækjaskrá samkvæmt lögum.
Afskráningar og endurskráningar
Eftirtaldir aðilar geta gert samning um að vinna í umboði Samgöngustofu hvað varðar móttöku umsókna um afskráningu og endurskráningu, og um tilkynningu til Samgöngustofu um endurskráningu (kallaðir þjónustuaðilar):
Faggiltar skoðunarstofur ökutækja
Viðurkenndir úrvinnsluaðilar ökutækja
Efni kaflans
Afskráning ökutækis til úrvinnslu
Heimilt er að afskrá ökutæki þegar því er skilað til úrvinnslu.
Eigendur geta sótt um afskráningu ökutækis sem skila á til úrvinnslu eða sem skilað hefur verið til úrvinnslu. Sé umsóknin lögð inn áður en ökutæki er skilað er hún gerð með stafrænum hætti og hún svo staðfest af úrvinnsluaðila við móttöku ökutækisins á úrvinnslustöð. Einnig er í boði að fara með ökutækið fyrst til úrvinnsluaðila og fylla þar út umsókn um afskráningu (skilavottorð á pappír) í samvinnu við úrvinnsluaðila og framvísa henni svo hjá þjónustuaðila.
Móttaka stafrænna tilkynninga og umsókna
Samgöngustofa hefur það að markmiði að gera þjónustu sína stafræna og hvetur því til þess að viðskiptavinum sé leiðbeint um þann kost að útbúa umsókn um afskráningu þannig (áður en ökutæki er skilað til úrvinnslu).
Móttaka umsókna á pappír
Ökutæki þarf að hafa verið skilað til úrvinnslu og móttaka þess staðfest af viðurkenndum úrvinnsluaðila (með útgáfu skilavottorðs). Ökutæki verður afskráð þótt á því hvíli opinber gjöld enda falla áfallin gjöld ekki niður við afskráningu.
Við móttöku skilavottorðs er gengið úr skugga um að það sé í frumriti, það sé rétt útfyllt og öll skilyrði skráningar uppfyllt. Ef umsóknin er ekki skráningarhæf (t.d. rangar upplýsingar, óljósar eða yfirstrikanir) skal vísa henni frá og leiðbeina viðskiptavini um það sem lagfæra þarf.
Fastanúmer (verksmiðjunúmer) og tegund: Tilgreina skal fastanúmer ökutækis (má líka tilgreina verksmiðjunúmer). Upplýsingar um tegund má vanta en ef tegund er tilgreind verður hún að passa við tilgreint fastanúmer.
Eigandi: Nafn og kennitala eiganda verður að passa saman. Ef það eru fleiri eigendur að ökutæki verða þeir allir að koma fram.
Dagsetning afskráningar: Skal vera móttökudagur umsóknar um afskráningu hjá þjónustuaðila. Þó má miða við skráningardag í öðru landi ef með fylgir staðfesting frá erlendum skráningaraðila á því.
Álestur ökumælis (þungaskattur): Eiganda ökutækis er skylt að láta framkvæma álestur, sé slíkur búnaður fyrir hendi í ökutækinu, áður en afskráning á sér stað. Fylla skal út eyðublað (RSK 10.33) og senda til RSK. Ef ekki er lesið af ökumæli við afskráningu áætlar RSK þungaskatt við næstu álagningu.
Álestur akstursmælis: Skal skráður á umsókn fyrir hreinorkubifreiðir og tengiltvinnbifreiðir.
Skráningarmerki: Merkt er við afdrif skráningarmerkja; (a) Afhent við afskráningu, og þá er þeim skilað inn og skal þeim þá fargað. (b) Þegar skráð í geymslu, og þá fargar geymsluaðili þeim við reglubundna hreinsun. (c) Týnd, þá um leið lýsir eigandi því yfir að merkin hafi glatast og að hann muni skila þeim til Samgöngustofu tafarlaust ef þau finnast. Sú ástæða á einnig við hafi þau verið flutt með ökutækinu úr landi.
Í umboði skal koma fram efni umboðs, fastanúmer ökutækis, nafn og kennitala umboðsmanns, undirritun umbjóðanda, tveir vitundarvottar, staður og dagsetning. Umbjóðandi, umboðsmaður og vitundarvottar skulu allir að vera orðnir 18 ára.
Skráningarhæfar umsóknir eru mótteknar, greiðslustimplaðar af þjónustuaðila og sendar daglega til Samgöngustofu. Réttaráhrif afskráninga miðast við skráningardag þ.e. afskráning tekur gildi þegar hún er skráð hjá Samgöngustofu. Mótteknar umsóknir sem berast Samgöngustofu til skráningar eru færðar í tímaröð. Fyrir rekjanleika skráir Samgöngustofa þjónustuaðila og móttökudag umsókna (eftir greiðslustimpli) í ökutækjaskrá.
Gjaldtaka
Samgöngustofa tekur ekki gjald fyrir umsókn um afskráningu.
Tölvuvinnsla
Engin tölvuvinnsla er hjá þjónustuaðila (útfyllt skilavottorð send til Samgöngustofu).
Efni kaflans
Afskráning ökutækis í öðrum tilvikum
Heimilt er að afskrá ökutæki þegar það er flutt úr landi. Að auki er heimilt að afskrá ökutæki af öðrum ástæðum í sérstökum tilvikum.
Eigendur geta tilkynnt um afskráningu ökutækis sem flutt er úr landi eða lagt inn umsókn um afskráningu ökutækis af öðrum ástæðum. Tilkynningunni og umsóknum ber að skila með stafrænum hætti á heimasíðu Samgöngustofu. Einnig er í boði að skila á eyðublaði og framvísa því hjá þjónustuaðila.
Móttaka stafrænna tilkynninga og umsókna
Samgöngustofa hefur það að markmiði að gera þjónustu sína stafræna og hvetur því til þess að viðskiptavinum sé leiðbeint um þann kost að ganga frá tilkynningu eða umsókn um afskráningu þannig.
Móttaka umsókna á pappír
Ökutæki þarf að vera á skrá (ekki á forskrá og ekki afskráð) til að hægt sé að tilkynna eða sækja um afskráningu. Ökutæki verður afskráð þótt á því hvíli opinber gjöld enda falla gjöld ekki niður við afskráningu.
Við móttöku tilkynningar eða umsóknar um afskráningu (US.109) er gengið úr skugga um að umsókn sé í frumriti, hún sé rétt útfyllt og öll skilyrði skráningar uppfyllt. Ef umsókn er ekki skráningarhæf (t.d. rangar upplýsingar, óljósar eða yfirstrikanir) skal vísa henni frá og leiðbeina viðskiptavini um það sem lagfæra þarf.
Fastanúmer (verksmiðjunúmer) og tegund: Tilgreina skal fastanúmer ökutækis (má líka tilgreina verksmiðjunúmer). Upplýsingar um tegund má vanta en ef tegund er tilgreind verður hún að passa við tilgreint fastanúmer.
Eigandi: Nafn og kennitala eiganda verður að passa saman. Ef það eru fleiri eigendur að ökutæki verða þeir allir að koma fram.
Dagsetning afskráningar: Skal vera móttökudagur umsóknar um afskráningu hjá þjónustuaðila. Þó má miða við skráningardag í öðru landi ef með fylgir staðfesting frá erlendum skráningaraðila á því.
Álestur ökumælis (þungaskattur): Eiganda ökutækis er skylt að láta framkvæma álestur, sé slíkur búnaður fyrir hendi í ökutækinu, áður en afskráning á sér stað. Fylla skal út eyðublað (RSK 10.33) og senda til RSK. Ef ekki er lesið af ökumæli við afskráningu áætlar RSK þungaskatt við næstu álagningu.
Álestur akstursmælis: Skal skráður á umsókn fyrir hreinorkubifreiðir og tengiltvinnbifreiðir.
Skráningarmerki: Merkt er við afdrif skráningarmerkja; (a) Afhent við afskráningu, og þá er þeim skilað inn og skal þeim þá fargað. (b) Þegar skráð í geymslu, og þá fargar geymsluaðili þeim við reglubundna hreinsun. (c) Týnd, þá um leið lýsir eigandi því yfir að merkin hafi glatast og að hann muni skila þeim til Samgöngustofu tafarlaust ef þau finnast. Sú ástæða á einnig við hafi þau verið flutt með ökutækinu úr landi.
Á tilkynningu eða umsókn um afskráningu skal alltaf tilgreina ástæðu afskráningar. Ástæða afskráningar getur verið ein af eftirfarandi ástæðum:
Afskráð úr landi: Eigandi getur tilkynnt um afskráningu ökutækis sem flutt er úr landi ef hann framvísar staðfestingu á flutningi úr landi frá flutningsaðila eða tollstjóra. Samgöngustofa hefur heimild til að afskrá ökutæki úr landi án samþykkis eiganda ef flutningur úr landi er staðfestur af þar til bærum aðila.
Afskráð týnt: Eigandi getur sótt um að afskrá ökutæki sem er týnt, sé það staðfest af þar til bærum aðila. Athuga að óheimilt er að hafa eigendaskipti að ökutæki sem afskráð hefur verið týnt, nema farið sé með það í endurskráningu fyrst. Þó er tryggingafélagi heimilt að hafa eigendaskipti að ökutæki yfir á sjálft sig sé verið að greiða ökutækið út eftir þjófnað.
Afskráð ónýtt: Eigandi getur sótt um að afskrá ökutæki sem var skráð úr umferð fyrir 1. júlí 2003 gegn yfirlýsingu um að ökutækinu hafi verið fargað en ekki unnt að fá útgefið skilavottorð.
Afskráð fornökutæki: Eigendi getur sótt um að afskrá ökutæki sem náð hefur 25 ára aldri, miðað við árgerð eða fyrstu skráningu ef því er lýst yfir að ökutækið verði varðveitt sem safngripur (sjá yfirlýsingu á afskráningarbeiðni).
Í umboði skal koma fram efni umboðs, fastanúmer ökutækis, nafn og kennitala umboðsmanns, undirritun umbjóðanda, tveir vitundarvottar, staður og dagsetning. Umbjóðandi, umboðsmaður og vitundarvottar skulu allir að vera orðnir 18 ára.
Skráningarhæfar tilkynningar og umsóknir eru mótteknar, greiðslustimplaðar af þjónustuaðila og sendar daglega til Samgöngustofu. Réttaráhrif afskráninga miðast við skráningardag þ.e. afskráning tekur gildi þegar hún er skráð hjá Samgöngustofu. Mótteknar tilkynningar og umsóknir sem berast Samgöngustofu til skráningar eru færðar í tímaröð. Fyrir rekjanleika skráir Samgöngustofa þjónustuaðila og móttökudag umsókna (eftir greiðslustimpli) í ökutækjaskrá.
Sértilfelli afskráninga
Eftirfarandi sértilvikum afskráninga er vísað til Samgöngustofu til afgreiðslu:
Afskráning á forskráðu ökutæki: Afgreitt sem niðurfelling forskráningar að skilyrðum uppfylltum.
Afskráning Samgöngustofu án samþykkis eiganda: Samgöngustofu er heimilt að afskrá ökutæki án samþykkis eiganda að skilyrðum uppfylltum.
Leiðrétting á afskráningu: Samgöngustofu er heimilt að breyta ástæðu afskráningar í úrvinnslu ef framvísað er skilavottorði.
Gjaldtaka
Samgöngustofa tekur ekki gjald fyrir tilkynningu eða umsókn um afskráningu.
Gjald Samgöngustofu fyrir afskráningu á forskráðu ökutæki er 2.914 krónur.
Tölvuvinnsla
Engin tölvuvinnsla er hjá þjónustuaðila (útfylltum pappír er komið til Samgöngustofu).
Efni kaflans
Endurskráning ökutækis
Heimilt er að endurskrá ökutæki, sem áður var skráð hérlendis, eftir að það var afskráð úr landi (eða af öðrum sérstökum ástæðum). Óheimilt er að endurskrá ökutæki sem hefur verið afskráð vegna úrvinnslu (fargað).
Umsókn um endurskráningu berst með skeytasendingu frá skoðunarstöð til Samgöngustofu.
Móttaka stafrænna umsókna
Ekki er boðið upp á umsókn um endurskráningu ökutækis á stafrænu formi.
Móttaka umsókna á pappír
Ökutæki þarf áður að hafa verið á skrá hérlendis og þar með hafa fengið úthlutað fastanúmeri. Það má ekki vera með breytingalás sem læsir nýskráningu.
Við móttöku umsóknar um endurskráningu (US.110) er gengið úr skugga um að hún sé í frumriti, hún sé rétt útfyllt og öll skilyrði skráningar uppfyllt. Ef umsókn er ekki skráningarhæf (t.d. rangar upplýsingar, óljósar eða yfirstrikanir) skal vísa henni frá og leiðbeina viðskiptavini um það sem lagfæra þarf.
Eigandi og undirritun: Skráður eigand ökutækisins skal undirrita eða undirritað samkvæmt umboði (sjá neðar). Ef ökutæki er endurskráð á annan en skráðan eiganda verður að framvísa fullgildri eigendaskiptatilkynningu samhliða.
Dagsetning endurskráningar: Endurskráningardagsetning skal vera sú dagsetning þegar skoðunarstofa tilkynnir um endurskráningu. Almennt er óheimilt að endurskrá ökutæki aftur í tímann.
Tryggingafélag: Tilgreina skal tryggingafélag ökutækis, nema það sé eftirvagn, og skráist tryggingafélagið í ökutækjaskrá við endurskráningu.
Í umboði skal koma fram efni umboðs, fastanúmer ökutækis, nafn og kennitala umboðsmanns, undirritun umbjóðanda, tveir vitundarvottar, staður og dagsetning. Umbjóðandi, umboðsmaður og vitundarvottar skulu allir að vera orðnir 18 ára.
Uppfylli umsókn framangreind formskilyrði er hún móttekin, greiðslustimpluð af þjónustuaðila og tilkynnt um endurskráningu að öðrum skilyrðum uppfylltum (sjá neðar). Fyrir rekjanleika skráir Samgöngustofa þjónustuaðila og móttökudag umsókna í ökutækjaskrá.
Tilkynning til Samgöngustofu um endurskráningu
Áður en tilkynnt er um endurskráningu til Samgöngustofu þarf þjónustuaðili til viðbótar að ganga úr skugga um að eftirfarandi skilyrði séu uppfyllt:
Skráningarskoðun: Skal standast skráningarskoðun á skoðunarstofu. Nánari reglur er að finna í Skoðunarhandbók ökutækja (verklagsbók fyrir skráningarskoðanir).
Skráningarmerki: Þau verða að hafa verið skráð móttekin hjá þjónustuaðila (mega vera móttekin á einhverjum öðrum geymslustað hans). Við endurskráningu afhendast skráningarmerkin á ökutækið. Réttur skoðunarmiði skal settur á miðað við skoðunarreglu ökutækis.
Nýr eigandi skráður: Hafi verið skilað inn eigendaskiptatilkynningu þarf Samgöngustofa að hafa klárað skráningu eigendaskipta í ökutækjaskrá.
Tollafgreiðsla: Ekki þarf að ganga sérstaklega úr skugga um tollafgreiðslu við endurskráningu enda sé tryggt að ökutæki hafi áður verið nýskráð og afskráð hér á landi.
Skattflokkur 70-79: Ef ökutæki er skráð í skattflokk á bilinu 70 - 79 er óheimilt að endurskrá það og verður Skatturinn (tollasvið) að aflétta honum áður en heimilt er að endurskrá ökutæki (sjá breytingalása).
Breytingalás: Ef ökutæki er skráð með breytingalás sem læsir nýskráningu er óheimilt að endurskrá það. Lásar sem læsa nýskráningu eru Nýskráningarlás (3), Heildarlás (6) og Skráning læst v/ vörugjalds (7) Afskráningarlás (18).
Ökutæki með ökumæli (þungaskattur): Ef ökutæki er með ökumæli skal framkvæma álestur og greiða áfallinn þungaskatt við endurskráningu.
Tjónabifreið: Óheimilt er að endurskrá ökutæki sem er skráð tjónaökutæki. Áður en endurskráning er heimil verður að ógilda tjónaskráninguna.
Að uppfylltum framangreindum skilyrðum öllum er þjónustuaðila heimilt að tilkynna Samgöngustofu um endurskráningu.
Þjónustuaðili getur óskað eftir leiðréttingu á framkvæmdri endurskráningu en slík beiðni verður að berast Samgöngustofu innan viku frá skráningardegi. Samgöngustofu er heimilt að fella niður skráningu ef beiðni berst um það samdægurs á afgreiðslutíma Samgöngustofu. Endurskráningargjald er ekki endurgreitt við niðurfellingu skráningar.
Sértilvik endurskráninga
Upp geta komið tilvik um mjög gömul ökutæki sem hafa verið í umferð og annað hvort fallið af skrá eða hafa hugsanlega aldrei verið á skrá. Þessum tilvikum ber að vísa til tæknideildar til rannsóknar.
Gjaldtaka
Gjald Samgöngustofu fyrir endurskráningu er 2.925 krónur og einnig ber að innheimta umferðaröryggisgjald 500 krónur.
Gjald Samgöngustofu fyrir leiðréttingu á endurskráningu er 1.071 króna.
Tölvuvinnsla
Engin tölvuvinnsla er hjá þjónustuaðila (útfylltum pappír er komið til Samgöngustofu).