Tilkynningarskyld flugatvik
Flugatvik er atburður sem getur haft áhrif á flugöryggi og ef atburðurinn er ekki greindur og hugsanlega leiðréttur, getur stofnað flugöryggi í hættu og leitt til alvarlegs flugatviks eða slyss. Atvik falla undir eftirfarandi flokka og skulu tilkynnt í gegnum kerfi fyrir skyldubundnar tilkynningar flugatvika:
Atvik sem tengjast starfrækslu loftfarsins.
Atvik sem tengjast tæknilegum skilyrðum, viðhaldi og viðgerðum á loftförum.
Atvik sem tengjast flugleiðsöguþjónustu og flugvirkjum.
Atvik sem tengjast flugvöllum og þjónustu á jörðu niðri.
Hægt er að nálgast lista yfir yfir atburði sem á að tilkynna. Listinn er ekki tæmandi heldur er það lagt í hendur þeirra sem tilkynna að meta atvikið útfrá listanum.
Öll tilkynningarskyld flugatvik skulu tilkynnt í gegnum ECCAIRS gagnagrunninn.
Þjónustuaðili
Samgöngustofa