Meðferð persónuupplýsinga hjá sýslumönnum eftir málaflokkum
Fjölskyldumál
Ábyrgðaraðili vinnslu
Sýslumenn eru ábyrgðaraðilar fyrir vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem aflað er á eyðublöðum undir flokknum fjölskyldumál. Sýslumenn notast ekki við sjálfvirka ákvörðunartöku við vinnslu persónuupplýsinga vegna meðferðar dánarbúa.
Tilgangur og heimildir fyrir vinnslu
Með eyðublöðunum er bæði aflað almennra og viðkvæmra persónuupplýsinga. Tilgangur vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem aflað er frá hinum skráða með eyðublöðum er að sinna lögbundnum skyldum sýslumanna í tengslum við meðferð lögráðamála. Heimildir fyrir vinnslu almennra persónuupplýsinga koma fram í 3. tl. 1. mgr. 9. gr. Heimildir fyrir vinnslu viðkvæmra persónuupplýsinga koma fram í 1. tl. og e.a . 3. tl. mgr. 11. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Mælt er fyrir um lagaskyldur sýslumanna í tengslum við meðferð fjölskyldumála í hjúskaparlögum nr. 31/1993, barnalögum nr. 76/2003 og lögum um ættleiðingar nr. 130/1999. Til þess að unnt sé að vinna beiðnir þarf að veita allar umbeðnar upplýsingar, nema einstaka liðir eigi ekki við. Vakin er athygli á að skortur á upplýsingum kann að hafa áhrif á niðurstöðu máls.
Miðlun persónuupplýsinga
Persónuupplýsingum sem aflað er í tengslum við meðferð fjölskyldumála er miðlað til aðila máls, sbr. 15. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, til Þjóðskrár, t.d. á grundvelli 5. mgr. 32. gr. barnalaga nr. 76/2003.
Geymslutími
Samkvæmt lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn eru öll skjöl geymd hjá sýslumanni í 30 ár og rafræn gögn í 5 ár áður en þau eru send til Þjóðskjalasafns til varðveislu.
Réttindi skráðra einstaklinga
Skráðir einstaklingar eiga almennt rétt til upplýsinga um vinnslu, hvort sem persónuupplýsinga er aflað hjá þeim sjálfum eða ekki, svo og rétt til aðgangs að persónuupplýsingum um sig. Þeir eiga jafnframt rétt á að fá óáreiðanlegar persónuupplýsingar um sig leiðréttar svo og rétt til að ábyrgðaraðilinn eyði persónuupplýsingum um hann án ótilhlýðilegrar tafar (réttur til að gleymast) og rétt til að ábyrgðaraðili takmarki vinnslu. Beina má kvörtun vegna vinnslu persónuupplýsinga til Persónuverndar. Persónuverndarstefnu sýslumanna og upplýsingar um persónuverndarfulltrúa þeirra er að finna hér á vef sýslumanna.
Þjónustuaðili
Sýslumenn