Meðferð persónuupplýsinga hjá sýslumönnum eftir málaflokkum
Andlát og dánarbú
Ábyrgðaraðili vinnslu
Sýslumenn eru ábyrgðaraðilar fyrir vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem aflað er á eyðublöðum undir flokknum andlát og dánarbú. Sýslumenn notast ekki við sjálfvirka ákvörðunartöku við vinnslu persónuupplýsinga vegna meðferðar dánarbúa.
Tilgangur og heimildir fyrir vinnslu
Með eyðublöðunum er einungis aflað almennra persónuupplýsinga. Tilgangur vinnslu þeirra persónuupplýsinga sem aflað er frá hinum skráða með eyðublöðum er að sinna lögbundnum skyldum sýslumanna í tengslum við meðferð dánarbúa eftir beiðnum skráðra einstaklinga. Heimildir fyrir vinnslu upplýsinganna koma fram í 3. tl. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Mælt er fyrir um lagaskyldur sýslumanna í tengslum við meðferð dánarbúa í lögum um skipti á dánarbúum o.fl. nr. 20/1991, erfðalögum nr. 8/1962 og lögum um erfðafjárskatt nr. 14/2004. Til þess að unnt sé að vinna beiðnir þarf að veita allar umbeðnar upplýsingar, nema einstaka liðir eigi ekki við.
Miðlun persónuupplýsinga
Persónuupplýsingum sem aflað er í tengslum við meðferð dánarbúa er miðlað til þeirra sem hafa af þeim lögvarða hagsmuni, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um skipti á dánarbúum o.fl. nr. 20/1991. Upplýsingum sem fram koma í erfðafjárskýrslum er miðlað til Ríkisskattstjóra, sbr. 2. mgr. 8. gr. laga um erfðafjárskatt nr. 14/2004.
Geymslutími
Samkvæmt lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn eru öll skjöl geymd hjá sýslumanni í 30 ár og rafræn gögn í 5 ár áður en þau eru send til Þjóðskjalasafns til varðveislu.
Réttindi skráðra einstaklinga
Skráðir einstaklingar eiga almennt rétt til upplýsinga um vinnslu, hvort sem persónuupplýsinga er aflað hjá þeim sjálfum eða ekki, svo og rétt til aðgangs að persónuupplýsingum um sig. Þeir eiga jafnframt rétt á að fá óáreiðanlegar persónuupplýsingar um sig leiðréttar svo og rétt til að ábyrgðaraðilinn eyði persónuupplýsingum um hann án ótilhlýðilegrar tafar (réttur til að gleymast) og rétt til að ábyrgðaraðili takmarki vinnslu. Beina má kvörtun vegna vinnslu persónuupplýsinga til Persónuverndar. Persónuverndarstefnu sýslumanna og upplýsingar um persónuverndarfulltrúa þeirra er að finna hér á vef sýslumanna.
Þjónustuaðili
Sýslumenn