Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til Alþingis 2024
Stjórnmálasamtök sem hafa fengið úthlutuðum listabókstaf frá dómsmálaráðuneytinu geta stofnað rafræna meðmælasöfnun fyrir framboð sín í öllum kjördæmum.
Þeir einstaklingar sem hafa prókúru og geta skráð sig inn á Ísland.is í umboði stjórnmálasamtakanna geta stofnað meðmælasöfnun.
Hægt er að velja umsjónaraðila inni í kerfinu sem hefur aðgang að söfnunum í öllum kjördæmum og getur slegið inn kennitölur meðmælenda af blaði.
Þegar meðmælasöfnun hefur verið stofnuð geta einstaklingar skráð sig inn með rafrænum skilríkjum og mælt með framboði.
Í kerfinu verður til hlekkur sem hægt er að afrita og deila og auðvelda þannig fólki að mæla með tilteknum stjórnmálasamtökum.
Hægt er að slá inn kennitölur meðmælenda í kerfið sem safnað hefur verið á pappír.
Þegar stjórnmálasamtök skila inn tilkynningu um framboð til landskjörstjórnar skal þess getið að meðmælum hafi verið safnað rafrænt. Hægt er að nálgast skýrslu um stöðu söfnunar inni í kerfinu.
Óheimilt er að afrita, miðla eða nýta upplýsingar um meðmælendur í nokkrum öðrum tilgangi en að safna þeim til þess að skila inn framboði.
Landskjörstjórn ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem unnið er með í þeim tilgangi að auðkenna frambjóðendur og meðmælendur. Hér má nálgast persónuverndarstefnu landskjörstjórnar.
Listabókstafir sem úthlutað hefur verið eru:
B-listi (Framsóknarflokkur)
C-listi (Viðreisn)
D-listi (Sjálfstæðisflokkur)
F-listi (Flokkur fólksins)
J-listi (Sósíalistaflokkur Íslands)
M-listi (Miðflokkurinn)
O-listi (Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn)
P-listi (Píratar)
S-listi (Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands)
V-listi (Vinstrihreyfingin – grænt framboð)
Y-listi (Ábyrg framtíð)
Ef þú ferð fyrir stjórnmálasamtökum sem hyggjast bjóða fram til Alþingis og er ekki á listanum er fyrsta skrefið að fá úthlutuðum listabókstaf hjá dómsmálaráðuneytinu.
Þjónustuaðili
Þjóðskrá