Greitt 1. apríl
22. mars 2024
Greiðslur fyrir apríl 2024 verða greiddar fyrsta dag mánaðarins eins og alla aðra mánuði ársins.
Okkur berast gjarnan fyrirspurnir um greiðslur í kringum hátíðisdaga og því viljum við upplýsa hér um að greiðslur í almannatryggingakerfinu eru greiddar fyrirfram fyrsta dag hvers mánaðar lögum samkvæmt, það á við hvort sem um hátíðisdaga er að ræða eða ekki. Því munu greiðslur fyrir apríl 2024 berast 1. apríl.