Frumvarp um eingreiðslu samþykkt
18. desember 2023
Alþingi hefur samþykkt frumvarp um eingreiðslu til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega að upphæð 66.381 kr. sem og fjáraukalög fyrir 2023. Undirbúningur greiðslna er þegar hafinn hjá TR og er lögð áhersla á að greiðsla berist svo fljótt sem auðið er.
Eingreiðsluna fá þau sem eiga rétt á greiðslu örorku- eða endurhæfingarlífeyris á árinu 2023. Hafi lífeyrisþegi fengið greitt hluta úr ári er eingreiðslan í hlutfalli við greiðsluréttindi viðkomandi á árinu. Eingreiðslan telst ekki til skattskyldra tekna lífeyrisþega og leiðir ekki til skerðingar annarra greiðslna.
Viðskiptavinir eru hvattir til að fylgjast vel með á Mínum síðum og á tr.is þar sem frétt verður birt þegar greitt hefur verið.