Fræðslufundur um ellilífeyri aðgengilegur á YouTube síðu TR
15. mars 2024
Fræðslufundurinn: Allt um ellilífeyri - þetta þarf ekki að vera flókið sem fór fram í streymi þann 13. mars síðastliðinn er nú aðgengilegur á YouTube síðu TR.
Á fundinum var farið yfir allt sem snýr að umsóknum um ellilífeyri frá TR, greiðslufyrirkomulag og fleira.