Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Endurskoðun örorkulífeyriskerfisins: Frumvarp birt í samráðsgátt

16. febrúar 2024

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur birt drög að frumvarpi vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfisins í samráðsgátt stjórnvalda.

Tryggingastofnun-Logo

Meginefni frumvarpsins snýr að breytingum á lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir.

Í frétt á vef Stjórnarráðsins kemur m.a. fram "að markmiðið sé að bæta afkomu þeirra sem fá greiddan örorkulífeyri, einfalda kerfið, draga úr tekjutengingum, auka hvata til atvinnuþátttöku og gera örorkulífeyriskerfið skilvirkara, gagnsærra og réttlátara. Þá er stuðningur aukinn við fólk meðan á endurhæfingu þess stendur, samvinnu þjónustukerfa komið á og áhersla lögð á að hindra að fólk falli á milli kerfa."