Bráðabirgðagreiðsluáætlun 2024 birt - hækkun 5,6% frá 1. janúar 2024
27. desember 2023
Bráðabirgðagreiðsluáætlun fyrir árið 2024 hefur verið birt á Mínum síðum TR og þar er reiknað með 5,6% hækkun fjárhæða hjá TR á næsta ári.
Tillaga að tekjuáætlun 2024 hefur einnig verið birt á Mínum síðum og hvetjum við viðskiptavini til að fara vel yfir hana.
Um er að ræða bráðabirgðagreiðsluáætlun fyrir árið 2024, miðað er við staðgreiðsluhlutfall skatta á árinu 2023. Gert er ráð fyrir að greiðsluáætlunin fyrir árið 2024 með endanlegu staðgreiðsluhlutfalli verði birt á Mínum síðum fyrri hluta janúarmánaðar.
Tillaga að tekjuáætlun 2024 var birt á Mínum síðum 6. desember sl., en greiðslur til einstaklinga á árinu 2024 byggja á henni. Hægt er að gera leiðréttingar á tillögu að tekjuáætlun ef við á og þannig getur hver og einn stuðlað að því að greiðslur frá TR verði sem réttastar á næsta ári.
Sjá nánar um tekju- og greiðsluáætlanir hér.