Áttu rétt á ellilífeyri?
27. janúar 2023
Ef þú ert að huga að töku ellilífeyris frá TR er gagnlegt fyrir þig að horfa á kynningu sem var tekin upp á vel sóttum fundi TR í vikunni.
Við erum einnig með kynningu á reiknivél lífeyris sem er gagnlegt að skoða.
Það var góð þátttaka á fundinum í Hlíðasmára og töluverður fjöldi fylgdist með honum í streymi. Við leggjum áherslu á að miðla upplýsingum með sem fjölbreyttustum hætti og vonum að þessi kynningarmyndbönd nýtist sem best. Við erum reiðubúin að koma með kynningar t.d. til félagasamtaka.