2,5% hækkun á fjárhæðum almannatrygginga
30. júní 2023
Í samræmi við lög nr. 54/2023 hækka greiðslur almannatrygginga um 2,5% frá 1. júlí 2023. Breytingin á mánaðarlegum greiðslum ræðst af tekjum þeim sem koma til samhliða greiðslum TR.
Helstu upphæðir frá og með 1. júlí 2023:
Ellilífeyrir:
Ellilífeyrir er að hámarki 315.525 kr. á mánuði.
Heimilisuppbót er að hámarki 79.732 kr. á mánuði
Örorkulífeyrir og endurhæfingarlífeyrir:
Örorku- og endurhæfingarlífeyrir er að hámarki 59.678 kr. á mánuði.
Tekjutrygging er að hámarki 191.105 kr. á mánuði.
Aldursviðbót er að hámarki 59.678 kr. á mánuði (100%).
Heimilisuppbót er að hámarki 64.596 kr. á mánuði.
Fjárhæðamörk vegna sérstakrar uppbótar til framfærslu eru:
399.034 kr. á mánuði hjá þeim sem fá greidda heimilisuppbót.
317.356 kr. hjá öðrum.
Minnum á að:
Greiðslur eru reiknaðar út frá tekjuáætlun sem lífeyrisþegar bera ábyrgð á að leiðrétta ef þörf er á.
Hægt er að skoða og breyta tekjuáætlun á Mínum síðum á tr.is