Umsókn um styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða
30. september 2021
Ferðamálastofa hefur opnað nýja rafræna umsókn á Ísland.is. Nú geta ferðamannastaðir og ferðamannaleiðir í eigu og umsjón sveitafélaga og einkaaðila sótt um rafrænt á Ísland.is. Opið er fyrir umsóknir til kl. 13.00 þriðjudaginn 26. október 2021.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða hefur auglýst eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2022. Opið er fyrir umsóknir frá 27. september til kl. 13 þriðjudaginn 26. október. Framkvæmdasjóðurinn fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:
Öryggi ferðamanna.
Náttúruvernd og uppbyggingu.
Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.
Sjóðnum er ekki heimilt:
Að bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
Að fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
Gæði umsókna
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins ásamt frekari upplýsingum um skilyrði lánveitinga og umsóknarferlið sem finna má á upplýsingasíðu um umsóknir hjá Ferðamálastofu.
Umsóknum er skilað rafrænt á Ísland.is.
Mynd af Goðafossi eftir Arnar Dansson.