Ökukennarar orðnir stafrænir
23. júní 2023
Ökukennarar móttækilegir fyrir stafrænum ferlum og koma til móts við þarfir nemenda sinna.
Nú í maí var lokaskrefið í stafvæðingu ökunáms tekið með því að birta ökunámsbók ökunema með stafrænum hætti á Mínum síðum Ísland.is. Ökunemar og ökukennarar hafa tekið þessari þróun vel eins og sjá má á notkunartölum en 95% ökukennara hafa hafið stafrænar skráningar. Það þýðir að ökukennarar geta staðfest með stafrænum hætti ökutíma, akstursmat og að nemandi sé tilbúinn í æfingaakstur.
Notkunartölurnar eru jákvæð vísbening en markmiðið með verkefninu er að einfalda ferlið og bæta þjónustu svo um munar. Þar skiptir upplifun ökukennara og ökunema miklu máli.
Hér má sjá yfirlit yfir fjölda ökukennara og hlutfall þeirra sem hafa skráð sig til þátttöku í stafrænu ökunámsferli:
Heildarfjöldi ökukennara (skv. ökuskírteinaskrá) | 277 |
---|---|
Virkir ökukennarar í B-námi frá janúar 2023 | 228 |
Hlutfall ökukennara í B-námi sem nota stafrænt ökunámsferli | 95% |
Nánari upplýsingar um ökunámið er að finna á Ísland.is