Fréttabréf nóvember 2023
13. nóvember 2023
Fréttabréf Stafræns Íslands nóvember 2023.
Birna Íris nýr framkvæmdastjóri Stafræns Íslands
Birna Íris er tölvunarfræðingur frá Háskóla Íslands og er jafnframt með MBA og nám á meistarastigi í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík, auk diplómu í jákvæðri sálfræði frá EHÍ. Undanfarin tvö ár hefur Birna starfað við ráðgjöf á sviði stefnumótunar og upplýsingatækni, auk þess að kenna námskeið í verkefnisstjórnun á meistarastigi við Háskólann í Reykjavík. Þar áður starfaði hún sem forstöðumaður UT reksturs og öryggis hjá Össur hf, rekstrarstjóri UT og stafrænnar þróunar hjá Högum og forstöðumaður upplýsingatækni hjá Sjóvá. Birna Íris tekur til starfa síðar í mánuðinum.
Erfðamál stafvædd
Að missa ástvin er erfið lífsreynsla og flókin ferli sem liggja þar að baki. Til að létta undir með aðstandendum hafa sýslumenn endurskoðað öll ferli sem snúa að erfðamálum og uppgjöri dánarbúa. Á Ísland.is er að finna gagnlegar upplýsingar fyrir aðstandendur allt frá andlátstilkynningu að legstað.
Stafræn umsókn um ökuritakort
Atvinnubílstjórar geta nú sótt um og endurnýjað ökuritakort með rafrænni auðkenningu þar sem upplýsingar um ökuréttindi, ljósmynd og undirskrift eru sótt í gagnagrunn sýslumanns.
71% ánægja með Ísland.is
Við þróun á nýjum vörum og þjónustu er mikilvægt að fylgjast með upplifun notenda.
Stafrænn skilnaður
Mínar síður Ísland.is hafa þróast umtalsvert undanfarin misseri. Í framhaldi af ítarlegum notendaprófunum er nú búið að uppfæra útlitið til að koma til móts við fjölbreyttan hóp notenda.
Tengjum ríkið 2023 aðgengilegt
Erindi frá Tengjum ríkið 2023 eru nú aðgengileg á Ísland.is
Stafræn hæfni
Stofnunum stendur nú til boða að taka þátt í könnun um stafræna hæfni starfsfólks. Ef stofnun hefur áhuga á að slík könnun sé gerð meðal starfsfólks vinsamlegast svarið hér að neðan til þess að fá frekari upplýsingar.
Beiðni um mat á stafrænni færni
Stafræna spjallið við Hvíta húsið í Bandaríkjunum
Stafræna spjallið breytist því í Digital Chat að þessu sinni og fer fram á ensku.
Digital Chat with the White House
Meðal verkefna Stafræns Íslands
Ákvörðun um skipti dánarbús
Birting á réttindum til P-korts í Ísland.is appi og Mínum síðum
Eigendaskipti vinnuvéla og tækja
Endurnýjun ökuréttinda
Mínar síður: Fjármál, hreyfingar á tímabilinu
Mínar síður: Greiðsluáætlanir Tryggingastofnunar
Mínar síður: Greiðslur og greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga
Mínar síður: Hugverkaréttindin mín
Mínar síður: Lána- og greiðslufirlit frá Húsnæðis og mannvirkjastofnun
Mínar síður: Námsyfirlit úr INNU
Mínar síður: Starfsleyfi heilbrigðisstarfsfólks
Rafræn erfðafjárskýrsla
Rafræn þinglýsing á kaupsamningum fasteigna
Stafrænt veiðikort
Tilkynning um vinnuslys
Umsón um dvalarleyfi
Umsókn um endurnýjun dvalarleyfa ítrun
Umsókn um ellilífeyri
Umsókn um háskóla
Umsókn um húsnæðisbætur
Umsókn um ríkisborgararétt ítrun
Umsókn um sannvottun
Upplýsingavefur um háskólanám á Íslandi
Vefur Tryggingastofnunar á Ísland.is
Vefur Vinnueftirlitsins á Ísland.is