Fara beint í efnið
Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Fréttabréf mars 2021

19. mars 2021

Á þessum tæpu tveimur árum frá því ríkisstjórn íslands undirritaði aðgerðaráætlun um eflingu stafrænnar þjónustu er verulegur árangur farinn að sjást. Árangurinn er bæði að finna í hagræðingu þar sem betur er farið með almannafé sem og tímasparnaði fyrir fólk, fyrirtæki og stofnanir með tilkomu stafrænna ferla.

ad missa astvin

Stökk í stafrænni þjónustu

Á þessum tæpu tveimur árum frá því ríkisstjórn íslands undirritaði aðgerðaráætlun um eflingu stafrænnar þjónustu er verulegur árangur farinn að sjást. Árangurinn er bæði að finna í hagræðingu þar sem betur er farið með almannafé sem og tímasparnaði fyrir fólk, fyrirtæki og stofnanir með tilkomu stafrænna ferla. 

2020 reyndi svo sannarlega á stafræna ferla hins opinbera og þörfina fyrir sjálfsafgreiðslulausnir en sú þörf heldur áfram að aukast í ár sem og komandi ár. Á stuttum tíma hafa stór skref verið tekin í átt að aukinni nýtingu á þróun stafrænna tæknilausna. Fjöldi grunnkerfa sem þessar lausnir byggja á hafa verið uppfærðar sem opnar á tækifæri og getu hins opinbera að hraða þessari vinnu og bæta lífsgæði með því að einfalda líf fólks.


ad-missa-astvin

Að missa ástvin

Þrjár leiðir eru nú að efni og upplýsingum á Ísland.is og ein þeirra er Lífsviðburðir en þeir eru í sífelldri þróun og í grunninn hugsaðir fyrir þá sem hafa ekki aðgang að stuðningsneti. Að missa ástvin er nýr lífsviðburður á Ísland.is sem tekur saman helstu upplýsingar fyrir aðstandendur látinna einstaklinga. 

Að missa ástvin


meistarabref-idngrein

Umsókn um meistarabréf nú stafræn

Iðnaðarmenn sem öðlast meistararéttindi geta nú sótt um meistarabréf sín rafrænt eftir að opnað var  fyrir stafrænar umsóknir um meistarabréf í löggiltum iðngreinum á vefnum Ísland.is.

Nánar um umsókn um meistarabréf


skilavottord

Stafrænt skilavottorð ökutækja

Endurgreiðsla skilagjalds ökutækja er komin í sjálfsafgreiðsluferli en greiddar eru 20.000 krónur í skilagjald fyrir hvern bíl sem fer í endurvinnslu. Þrjár mótttökustöðvar hafa tengt sig með sjálfvirkum hætti við Samgöngustofu og Úrvinnslusjóð sem nær yfir um 70% úr sér genginna ökutækja. Árlega er um 10-13 þúsund ökutækjum fargað.

Nánar um stafrænt skilavottorð ökutækja


Ísland.is

Í meðfylgjandi kynningarmyndbandi er tekin saman tilgangur og framtíðarsýn Ísland.is sem verður í sífelldri þróun næstu árin.

Horfa á kynningarmyndband


Meðal verkefna Stafræns Íslands þessa dagana eru:

  • Uppfærsla á kjarnaþjónustum á borð við mínar síður, innskráningarkerfi, umboðskerfi og umsóknarkerfi.

  • App fyrir Ísland.is

  • Tengingar stofnana við Strauminn (X-Road)

  • Uppfærsla á pósthólfi Ísland.is

  • Umsókn um fæðingarorlof

  • Ökunámsferlið frá námi til skírteinis í síma

  • Umsókn um almenna gjafsókn og lögbundna gjafsókn

Kveðja starfsfólk, 
Stafræns Íslands


Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með stefnumótun stjórnvalda um upplýsingatækni.  Á vegum ráðuneytisins er starfrækt verkefnastofa um Stafrænt Ísland sem vinnur að framgangi verkefna þvert á stofnanir ríkis og sveitarfélaga með það að markmið að stórefla stafræna þjónustu.