Fréttabréf maí 2023 #2
31. maí 2023
Stafrænt Ísland leggur áherslu á að þjónusta alla og tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum þess efnis. Fleiri opinberir aðilar er nú komnir á Ísland.is
Stafræn þjónusta fyrir alla
Tilgangur þess að megin samskiptaleið hins opinbera sé stafræn er að bæta þjónustu við almenning. Bætt stafræn þjónsta er tvíþætt og felur í sér annars vegar bætta upplýsingagjöf og aukna sjálfsafgreiðslu hins vegar.
Eins og kemur fram í Stafrænu stefnu stjórnvalda þá er stafræn þjónusta skýr, örugg, einföld og hraðvirk. Almenningur og fyrirtæki í landinu komast beint að efninu, hvar og hvenær sem er, sem sparar dýrmætan tíma fólks.
Stafrænt Ísland starfar eftir Stafrænu stefnunni og leggur sig fram við að tryggja að allir sem vilja nýta sér stafrænar leiðir að þjónstu hafi tækifæri til þess. Þess vegna er Stafrænt Ísland í virku samtali við fjölda hagsmunaaðila og forgangsraðar verkefnum þannig að svo megi verða. Ekkert er gefið eftir þegar kemur að aðgengi. Öll verkefni Stafræns Íslands byggja á efnisstefnu, aðgengisstefnu og hönnunarkerfi til að tryggja hæstu kröfur aðgengis.
Þessu til viðbótar kemur Stafrænt Ísland að tveimur mikilvægum verkefnum sem fjölgar þeim sem geta nýtt sér stafræna þjónustu. Það er verkefnið Gott að eldast sem er ætlað að bæta þjónustu við eldra fólk og þróun á lausnum fyrir stafrænt aðgengi fyrir fatlað fólk. Þannig viljum við hjá Stafrænu Íslandi leggja okkar að mörkum að stafræn þjónusta sé aðgengileg öllum sem hana vilja.
Velkomið á Ísland.is - Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri hefur flutt vefsvæði sitt til Ísland.is og er það þrettánda í röðinni. SAK er mikill liðsstyrkur fyrir heilbrigðisarm Ísland.is.
Skoða vef Sjúkrahúss Akureyringa
Bjóðum Skatturinn velkominn
Innleiðing á nýrri innskráningarþjónustu Ísland.is er í fullum gangi og tók svo sannarlega kipp þegar Skatturinn slóst með í för. Það var skemmtileg áskorun að innleiða á svo stóru augnabliki og birting álagningaseðlanna er. Staða við ríkissjóð er aðgengileg á Mínum síðum Ísland.is sem og greiðsludreifing sé þörf á.
Þjónustusíða Sjúkratrygginga opnuð
Síðan er sú fjórða í röðinni á Ísland.is og er markmiðið hennar að bæta upplýsingagjöf til notenda með því að gera notendum auðveldara fyrir að afla upplýsinga sjálfir.
Allt um bílinn þinn á Ísland.is
Nú hafa tilkynningar um eigendaskipti ökutækja og meðeigenda ökutækja flust yfir á Ísland.is.
Öryggisflokkun gagna uppfærð
Birt hefur verið útgáfa 1.2 af öryggisflokkun gagna ríkisins. Fyrsta útgáfa var birt í október 2022.
Umsóknarkerfi Ísland.is
Kynningarmyndband um hvernig umsóknarkerfi Ísland.is virkar og fyrir hverja það er.
Meðal verkefna Stafræns Íslands eru:
Ákvörðun um skipti dánarbús
Birting á einstaklingum með Verðbréfaréttindi á Íslandi
Birting á fasteignasalaskrá á Ísland.is
Birting á lögmannaskrá á Ísland.is
Eigendaskipti ökutækis
Eigendaskipti vinnuvéla og tækja
Endurnýjun einkamekis ökuréttindi
Endurnýjun ökuréttinda
Ísland.is app - Fjármál
Mínar síður: Fjármál, hreyfingar á tímabilinu
Mínar síður: Hugverkaréttindin mín
Mínar síður: Námsferilsyfirlit brautskráðra frá Háskóla Íslands
Mínar síður: Námsyfirlit úr INNU
Mínar siður: Starfsleyfi heilbrigðisstarfsfólks
Mínar síður. Vélar og tæki
Panta skráningarnúmer ökutækis
Rafræn erfðafjárskýrsla
Rafræn þinglýsing á kaupsamningum fasteigna
Samráðsgátt - uppfært notendaviðmót
Skráning leiðbeinanda fyrir æfingaakstur
Staðfesting á endurmenntun vegna verðbréfaréttinda
Staðfesting stafrænna ökuskírteina hjá Vínbúðunum
Stafræn umsókn um fæðingarorlof: Varanlegt fóstur og dvalarstyrkur
Stafrænt örorkuskírteini
Stafræn umsókn um vegabréf
Starfatorg ríkisins á Ísland.is
Tilkynning um vinnuslys
Umsókn um dvalarleyfi
Umsókn um endurnýjun dvalarleyfa ítrun
Umsókn um ES kortið
Umsókn um ríkisborgararétt ítrun
Umsókn um sannvottun
Umsókn um rekstarleyfi veitinga og gististaða
Umsókn um ökuritakort
Vefur gæða- og efrilitsstofnunar velferðarmála
Vefur Samgöngustofu á Ísland.is
Vefur Tryggingastofnunar á Ísland.is