Fréttabréf maí 2021
1. júní 2021
Stafrænt Ísland skiptir árinu upp í þrjár lotur frekar en fjórar eins og svo mörg fyrirtæki gera. Þetta fyrirkomulag er að reynast okkur vel enn sem komið er og í góðum takti við daglegt líf. Sumarið hófst því í maí með þéttri dagskrá
Stafrænt Ísland skiptir árinu upp í þrjár lotur frekar en fjórar eins og svo mörg fyrirtæki gera. Þetta fyrirkomulag er að reynast okkur vel enn sem komið er og í góðum takti við daglegt líf. Sumarið hófst því í maí með þéttri dagskrá. Ef við stiklum á stóru þá fór ný vefsíða Stafræns Íslands fór í loftið og ný síða sýslumanna sömuleiðis ásamt því að fjöldi rekstrarleyfa komst í sjálfsafgreiðslu. Beiðni um breytingu á lögheimili barns og umsókn um fulllnaðarökuskírteini eru að bresta á ásamt reglugerðarsafni sem mun breyta miklu fyrir notendur. Mínar síður eru komnar í nýtt kerfi sem og innskráningarþjónustan og prufur á nýju og uppfærðu umboðskerfi. Tvö risa mál munu líta dagsins ljós í júní en það er stafræn umsókn um fæðingarorlof og beta útgáfa af nýju appi Ísland.is.
TENGJUM RÍKIÐ ráðstefna Stafræns Íslands um stafræna vegferð
hins opinbera verður haldin fimmtudaginn 26. ágúst.
Takið daginn frá!
Full aðild Íslands að NIIS
Stórum áfanga í átt að betri umgjörð stafrænnar þjónustu var náð þegar Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra undirritaði samning um fulla aðild Íslands að NIIS (Nordic Institute for Interoperability Solutions) en hún vinnur að framþróun Straumsins (X-Road).
Nýtt vefsvæði - Stafrænt Ísland
Vefsvæði Stafræns Íslands hefur fengið andlitslyftingu og er nú komið inn í svokallað stofnanaform Ísland.is.
StafræntÍsland.is
Sýslumenn.is
Sýslumenn fluttu vef sinn fyrstir stofnana á Ísland.is þann 18. maí sl. Markmið sýslumanna er að einblína á hlutverk sitt gagnvart almenningi og láta aðra um tæknilegar útfærslur og rekstur vefsíðu.
Sýslumenn.is
Stafræn ökuréttindi frá a-ö
Vinna við að breyta ökunámsbók á stafrænt form er hafin í samstarfi við samgöngustofu en það er stór liður í að allt ökunámsferli geti orðið stafrænt. Þá er umsókn um ökunám sömuleiðis í vinnslu í samstarfi við Ríkislögreglustjóra, sýslumenn og samgöngustofu.
Rekstrarleyfi stafræn
Umsóknir um leyfi til reksturs gististaða, veitingastaða og tækifærisleyfa eru nú orðnar stafrænar og eru þær aðgengilegar á vef sýslumanna á Ísland.is gegn innskráningu með rafrænum skilríkjum.
Frétt um rekstrarleyfi
Kynningarmyndband Ísland.is
Í meðfylgjandi kynningarmyndbandi er tekinn saman tilgangur og framtíðarsýn Ísland.is sem verður í stöðugri þróun næstu árin.
Brot af stöðu verkefna:
1007 Íslandingar hafa skráð sig í gervigreindaráskorunina Elemennt
908 rafræn sakavottorð voru afgreidd í apríl á móti 286 á pappír.
259 rafræn búsforræðisvottorð voru afgreidd í apríl en 149 á pappír.
790 stafrænar umsóknir um heimagistingu hafa farið í gegn á Ísland.is frá jan-apríl á móti 21 handvirkri.
201.233 þúsund hafa sótt sína Ferðagjöf sem gildir til 31. maí en ný tekur gildi 1. júní nk.
Stafræn ökuskírteini eru komin yfir 106 þúsund.
Meðal verkefna í vinnslu þessa dagana eru:
Rafrænar greiðsluáætlanir opinberra skulda
Nýjar Mínar síður á Ísland.is
App fyrir Ísland.is
Tengingar stofnana við Strauminn (X-Road)
Umsóknakerfi á Ísland.is
Umsókn um fæðingarorlof
Nýtt innskráningarkerfi
Reglugerðarsafn
Rafrænar þinglýsingar fyrir almenning á Ísland.is
Ökunámferlið frá námi til skírteinis í síma
Umsókn um almenna gjafsókn og lögbundna gjafsókn
Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með stefnumótun stjórnvalda um upplýsingatækni. Á vegum ráðuneytisins er starfrækt verkefnastofa um Stafrænt Ísland sem vinnur að framgangi verkefna þvert á stofnanir ríkis og sveitarfélaga með það að markmið að stórefla stafræna þjónustu.