Fréttabréf júní 2021
30. júní 2021
Á þessum síðustu dögum núgildandi útboðs er verið að gefa út fjölda verkefna allt frá litlum til risavaxinna og þar með talin verkefni sem verður byggt á til framtíðar. Kjarnaþjónustur á við Mínar síður, Innskráningarþjónustu sem og Umboðskerfi Ísland.is eru komar í BETA prófanir.
Nýtt landslið Ísland.is
Á þessum síðustu dögum núgildandi útboðs er verið að gefa út fjölda verkefna allt frá litlum til risavaxinna og þar með talin verkefni sem verður byggt á til framtíðar. Kjarnaþjónustur á við Mínar síður, Innskráningarþjónustu sem og Umboðskerfi Ísland.is eru komar í BETA prófanir.
Útboðsferli eru sömuleiðis allnokkur þar sem útboð um rafrænar undirritanir er lengst komið í ferlinu, von er á útboði fyrir spjallmenni fyrir Ísland.is sem og "ticketingkerfi" Ísland.is.
Útboð hugbúnaðarfyritækja er opið til 19. júlí. Nánari upplýsingar um útboð má finna á Útboðsvefur.is.
Tengjum ríkið
Ráðstefna um stafræna framtíð hins opinbera verður haldin fimmtudaginn 26. ágúst.
Taktu daginn frá!
Leyfisbréf kennara stafræn
Komin er tenging á milli HÍ og MMS í gegnum Strauminn (x-road) og geta nú brautskráðir kennarar nálgast leyfisbréf sitt á Mínum síðum Ísland.is.
Útgáfa og innlögn lögmannsréttinda stafræn
Umsóknir um málflutningsleyfi fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti eru orðnar stafrænar og tilkynning um innlögn lögmannsréttinda er einnig orðin stafræn.
Lesa frétt um stafrænar umsóknir
Prófanir á umsókn um fæðingarorlof
Auglýst var eftir verðandi foreldrum til þátttöku í lokaprófunum á stafrænni umsókn Vinnumálastofnunar um fæðingaorlof. Á annað hundrað manns gáfu kost á sér í prófanir sem eru nú í fullum gangi.
Stafrænt pósthólf samþykkt á Alþingi
Skilvirkni og gagnsæi eykst og opinber þjónusta batnar með nýsamþykktum lögum Alþingis um stafrænt pósthólf.
Lesa frétt um stafrænt pósthólf
Vefþjónustan "Einstaklingar" aðgengileg
Nú er þeim merka áfanga náð að vefþjónustan Einstaklingur er komin upp á endanlegum stað í raunumhverfi X-Road/Straumsins og nauðsynlegum prófunum lokið.
Skoða vefþjónustuna "Einstaklingur"
Ísland.is
Í meðfylgjandi kynningarmyndbandi er tekinn saman tilgangur og framtíðarsýn Ísland.is sem verður í sífelldri þróun næstu árin.
Meðal verkefna Stafræns Íslands þessa dagana eru:
Ísland.is app - BETA prófanir
Mínar síður - BETA prófanir
Innskráningarþjónusta - BETA prófanir
Umsókn um fæðingarorlof - prófanir
Rafrænar greiðsluáætlanir
Tilkynning um slys til Sjúkratrygginga Íslands
Umboðskerfi
Umsókn um fullnaðarskírteini
Undirskriftar- og meðmælendalistar rafrænir
Stafrænn samningur um lögheimili barns
Vefur fyrir Útlendingastofnun
Vefur fyrir Sjúkratrygginar Íslands
Reglugerðarvefur
Kveðja starfsfólk,
Stafræns Íslands
Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með stefnumótun stjórnvalda um upplýsingatækni. Á vegum ráðuneytisins er starfrækt verkefnastofa um Stafrænt Ísland sem vinnur að framgangi verkefna þvert á stofnanir ríkis og sveitarfélaga með það að markmið að stórefla stafræna þjónustu.