Fréttabréf febrúar 2024
16. febrúar 2024
Fréttabréf Stafræns Íslands febrúar 2024
Ísland.is vinnur til UT-verðlaunaÍsland.is hlaut á föstudag UT-verðlaunin 2024 í flokknum UT-Stafræna opinbera þjónustan fyrir síðastliðið ár. Verðlaunin voru veitt á UT-messunni, einum stærsta viðburðir ársins í tölvugeiranum.
UT-verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni á Íslandi. Skýrslutæknifélag Íslands (Ský) veitir verðlaunin, en þau hafa verið veitt árlega frá árinu 2010. Miðeind hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni. Að auki voru verðlaun veitt í fimm flokkum:
Ísland.is hlaut sem fyrr segir verðlaun sem UT-Stafræna opinbera þjónustan.
Stafræn framþróun Landspítalans var valið UT-Fyrirtækið.
Indó hlaut verðlaun sem UT-Sprotinn.
DALA.CARE hlaut verðlaun sem UT-Stafræna almenna þjónustan
ALDA var valin UT-Fjölbreytilega fyrirmyndin
Viðburðardagatal Ísland.is
Þær stofnanir sem flutt hafa vefi sína á Ísland.is eru hluti af ritstjórn Ísland.is og hafa þeim bein áhrif á framþróun vefsíðunnar. Mikil eftirspurn hefur verið eftir viðburðardagatali sem hefur nú litið dagsins ljós.
Dæmi um viðburðardagatal hjá SAk
Þjónustusíða Samgöngustofu
Glæsileg þjónustusíða Samgöngustofu er komin í loftið en þar er helstu fyrirspurnum safnað saman á einfaldan og þægilegan hátt. Algengar spurningar sem þar er að finna verður sömuleiðis bætt í spjallmennið Ask á næstu vikum. Allt er þetta gert til að bæta aðgengi og upplýsingagjöf.
Stafræn vegferð í tölum
Fylgst er grannt með alls kyns tölfræðiupplýsingum til að meta árangur stafrænnar vegferðar. Sú tölfræði er nú öllum aðgengileg á vef Stafræns Íslands.
Mat á erlendu námi á Ísland.is
Upplýsingasíður og beiðni um mat á erlendu námi eru nú aðgengilegar á Ísland.is. Um er að ræða þrenns konar mat. Mat á erlendu háskólanámi, mat á framhaldsskólanámi og mat á námi til starfsréttinda.
Starfsleyfi Landlæknis
Starfsleyfisvottorð Landlæknis eru nú aðgengileg í Umsóknarkerfi Ísland.is. Það þýðir að heilbrigðisstarfsfólk getur skráð sig inn og fengið starfsvottorð sitt sent í Stafræna pósthólfið.
Vonast er til að þetta einfaldi líf þeirra sem þegar eru með starfsleyfi en unnið er að því að koma umsókn um starfsleyfi í Umsóknarkerfi Ísland.is.
Þjónustukerfi í útboð
Þjónustukerfi fyrir Ísland.is og samstarfsstofnanir er nú komið í útboð. Markmið með þjónustukerfinu er að bæta þjónustu við notendur hjá helstu þjónustustofnunum landsins.
Eva Sigurbjörg til Stafræns Íslands
Eva Sigurbjörg Þorkelsdóttir er nýr liðsmaður Stafræns Íslands og hefur tekið að sér hlutverk gæða- og verkefnastjóra. Bjóðum Evu hjartanlega velkomna!
Ragnhildur Helga tækni- og þróunarstjóri Stafræns Íslands
Ragnhildur Helga Ragnarsdóttir tekið að sér hlutverk tækni- og þróunarstjóra. Ragnhildur er að færa sig til innan Stafræns Ísland en hún var áður vörustjóri meðal annars Stafræna pósthólfsins og Minna síðna Ísland.is
Meðal verkefna Stafræns Íslands:
Eigendaskipti vinnuvéla og tækja
Endurnýjun ökuréttinda
Mínar síður: Fjármál, hreyfingar á tímabilinu
Mínar síður: Greiðsluáætlun Tryggingastofnunar
Mínar síður: Hugverkaréttindin mín
Mínar síður: Námsyfirlit úr INNU
Mínar síður: Starfsleyfi heilbrigðisstarfsfólks
Rafræn erfðafjárskýrsla
Rafræn þinglýsing á kaupsamningum fasteigna
Skírteini: Veiðikortið
Tilkynning um vinnuslys
Umsón um dvalarleyfi
Umsókn um endurnýjun dvalarleyfa ítrun
Umsókn um ellilífeyri
Umsókn um háskóla
Umsókn um ríkisborgararétt ítrun
Umsókn um sannvottun
Upplýsingavefur um háskólanám á Íslandi
Vefur Ríkissaksóknara
Vefur Tryggingastofnunar á Ísland.is
Vefur Vinnueftirlitsins á Ísland.is